Fjármála- og efnahagsráðuneyti

65/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 667/1995, um framtal og skil á virðisaukaskatti, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:

  1. Orðin "í því umdæmi þar sem skattaðili á lögheimili" í 1. mgr. falla brott.
  2. 4. mgr. fellur brott.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 24. gr. og 1. mgr. 49. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, öðlaðist gildi frá og með 1. janúar 2020.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. janúar 2020.

F. h. r.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Hlynur Ingason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica