Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Breytingareglugerð

554/2002

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 248/1990, um virðisaukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila, með síðari breytingum.

1. gr.

Við 14. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein er verður 5. mgr. og orðast svo:
Réttur til endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari fellur niður ef umsókn um endurgreiðslu berst viðkomandi skattstjóra eftir að sex ár eru liðin frá því að réttur til endurgreiðslu stofnaðist.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 3. gr., 23. gr. og 3. mgr. 42. gr. og 49. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast gildi þegar í stað.

Fjármálaráðuneytinu, 15. júlí 2002.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.

Ingvi Már Pálsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.