Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1106/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 627/2005, um ákvörðun kílómetragjalds og skyldur ökumanna, með síðari breytingum.

1. gr.

Í stað ártalanna "2017, 2018 og 2019" í ákvæði til bráðabirgða í reglugerðinni kemur: 2017 til 2021.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild 3. mgr. 23. gr. laga nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 21. nóvember 2019.

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Rakel Jensdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica