Í stað orðanna "ríkis, sveitarfélaga eða stofnana á þeirra vegum" í 2. tölul. 19. gr. reglugerðarinnar kemur: ríkis, sveitarfélaga, stofnana á þeirra vegum eða aðila sem gert hafa sérstakan þjónustusamning við ríki eða sveitarfélag.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 28. gr. laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., öðlast gildi þegar í stað.