Fjármálaráðuneyti

995/2001

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 63/1999, um greiðslu barnabóta, með síðari breytingum. - Brottfallin

995/2001

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð nr. 63/1999, um greiðslu barnabóta,
með síðari breytingum.

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Fjárhæð barnabóta.

Barnabætur skulu árlega nema 34.474 kr. með öllum börnum yngri en sjö ára á tekjuárinu.

Til viðbótar barnabótum skv. 1. mgr. skal greiða tekjutengdar barnabætur með hverju barni innan 16 ára aldurs á tekjuárinu, sem árlega skulu nema 117.031 kr. með fyrsta barni en 139.304 kr. með hverju barni umfram eitt. Tekjutengdar barnabætur með börnum einstæðra foreldra skulu vera 194.921 kr. með fyrsta barni, en 199.949 kr. með hverju barni umfram eitt.


2. gr.

4. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Skerðing barnabóta vegna tekna.

Barnabætur samkvæmt 2. mgr. 3. gr. skal skerða í jöfnu hlutfalli við tekjuskattsstofn umfram 1.354.727 kr. hjá hjónum og umfram 677.364 kr. hjá einstæðu foreldri.

Með tekjuskattsstofni í þessu sambandi er átt við tekjur skv. II. kafla laga nr. 75/1981, þó ekki tekjur skv. 3. tölul. C-liðar 7. gr. laga nr. 75/1981, að teknu tilliti til frádráttar skv. 1., 3., 5. og 6. tölul. A-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 75/1981 og frádráttar skv. 31. gr. laga nr. 75/1981. Skerðingarhlutfallið skal vera 4% með einu barni, 8% með tveimur börnum og 10% með þremur börnum eða fleiri.

Fjárhæð barnabóta skal skerða um þær barnabætur eða hliðstæðar bætur sem framfærandi hefur fengið erlendis frá á sama tekjuári vegna barnsins.


3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:

a. Orðin ,,og aðstöðugjald" í 4. tölul. falla brott.
b. 9. tölul. og 12. tölul. falla brott og breytist númeraröð töluliða samkvæmt því.

4. gr.

2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Við álagningu tekjuskatts og eignarskatts á árinu 2003 vegna tekna á árinu 2002 skulu fjárhæðir skv. 3. gr. hækka um 2,75% og fjárhæðir skv. 1. mgr. 4. gr. hækka um 4%. Þá skal skerðingarhlutfall skv. 4. gr. vera 3% með einu barni, 7% með tveimur börnum og 9% með þremur börnum eða fleiri.

3. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar fellur brott.


5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í A-lið 69. gr. og 119. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Fjármálaráðuneytinu, 21. desember 2001.

F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Erla Þ. Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica