Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

495/1996

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 310/1994, um endurgreiðslu eða niðurfellingu tolls og vörugjalds af kartöfluútsæði, græðlingum og öðrum efnivörum, hráefni og hlutum til framleiðslu garðyrkjuafurða.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Niðurfelling eða endurgreiðsla gjalda samkvæmt reglugerð þessari er bundin við vörur sem tilgreindar eru hér að neðan og flokkast í eftirtalin tollskrárnúmer, sbr. viðauka I við tollalög nr. 55/1987, með síðari breytingum:

0602.1000 Græðlingar og gróðurkvistir, án róta.
Úr 0602.4000 Rósir, einnig ágræddar, sem ætlaðar eru til framhaldsræktunar í gróðurhúsi til afskurðar.

Úr 0602.3000

0602.4000

0602.9020

0602.9030

0602.9059

0602.9070

0602.9091 og

0602.9092

Sáðplöntur, græðlingar og smáplöntur pottlausar eða í pottum eða bakkahólfum sem eru 6,5 cm í þvermál eða minni sem ætlaðar eru til framhaldsræktunar í gróðurhúsi í a.m.k. 2 mánuði fyrir sölu, þó ekki stórar úrslegnar plöntur og rótarþvegnar plöntur. Hámarkspottastærð á ekki við um smávaxin afbrigði (mini-plöntur), kaktusa eða þykkblöðunga þar sem miða skal við ungplöntur. Hámarkspottastærð á ekki við um tegundina Nertera granadensis. Hámarkspottastærð á ennfremur ekki við um alparósir (Azalea, Rhododendron) sem fluttar eru inn á tímabilinu 1. september til 31. október.

Úr 0602.2000

0602.3000

Smáplöntur af garðplöntum (1/0, 0/1) sem ætlaðar eru til framhaldsræktunar á garðplöntustöð í a.m.k. eitt sumar fyrir sölu.
0602.4000

0602.9045 og

0602.9051

Úr 0701.1000 Kartöfluútsæði flutt inn á tímabilinu 1. mars til 30. apríl.
Úr 6806.1009 Steinull, sérstaklega gerð til framleiðslu garðyrkjuafurða.
Úr 8539.3900 Úrhleðsluperur, þ.e. háþrýstiperur til lýsingar í gróðurhúsum.
Úr 9405.1009 Háþrýstilampar til lýsingar í gróðurhúsum.
Úr 9406.0009 Forsmíðuð gróðurhús.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 22. tölul. 6. gr. og 148. gr. tollalaga nr. 55/1987, og 2. mgr. 13. gr. laga nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum, til að öðlast gildi þegar í stað.

Fjármálaráðuneytinu, 10. september 1996.

F. h. r.

Indriði H. Þorláksson.

Guðrún Ásta Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.