1. gr.
Við 2. gr. bætist nýr töluliður, sem verður 10. töluliður, er orðast svo:
Vöruflutningar innanlands þegar flutt er beint til eða frá landinu.
2. gr.
2. tölul. 3. gr. orðast svo:
Vöruflutninga, aðra en vöruflutninga innanlands þegar flutt er beint til eða frá landinu.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 12. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, og öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytið, 16. febrúar 1994.
F.h.r.
Jón H. Steingrímsson.
Margrét Gunnlaugsdóttir.