Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1203/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

25% launatekna þeirra erlendu sérfræðinga sem hlotið hafa staðfestingu nefndar á því að þeir uppfylli skilyrði 6. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breyt­ingum, allt að þremur árum frá ráðningu í starf.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opin­berra gjalda, öðlast gildi 1. janúar 2017.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 14. desember 2016.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica