Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

26/2001

Reglugerð um innheimtu þinggjalda á árinu 2001.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Álögð þinggjöld á tekjur og eignir ársins 2000 sem ekki hafa verið innheimt í staðgreiðslu skulu greidd á tíu gjalddögum á árinu 2001. Eru gjalddagar fyrsti dagur hvers mánaðar nema mánuðina janúar og júlí. Eindagi er einum mánuði síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga hafi ekki verið greitt á eindaga.

2. gr.

Þar til álagning ársins 2001 liggur fyrir skal hver gjaldandi greiða fyrirfram upp í álagningu ársins. Greiðslan skal á hverjum gjalddaga nema 11,0% af þeim þinggjöldum, sbr. 1. gr. er honum bar að greiða á árinu 2000. Þau þinggjöld sem lögaðilar skulu greiða eru tekjuskattur, eignarskattur, sérstakur eignarskattur og iðnaðarmálagjald. Að því er einstaklinga varðar er átt við önnur þinggjöld gjaldársins 2001 en tekjuskatt, þ.e. iðnaðarmálagjald, eignarskatt og sérstakan eignarskatt.

Ekki skal innheimta fyrirframgreiðslu skv. 1. mgr. ef hún er undir 1.000 kr. á mánuði hjá hverjum gjaldanda.

3. gr.

Heimilt er gjaldanda að sækja um lækkun á þeirri fjárhæð þinggjalda sem honum hefur verið gert að greiða fram að álagningu 2001 skv. 2. gr.

Umsókn um slíka lækkun skal senda skattstjóra er úrskurðar um lækkun greiðsluskyldunnar. Heimilt er að kæra úrskurð skattstjóra til ríkisskattstjóra. Er úrskurður hans endanleg úrlausn málsins á stjórnsýslustigi.

4. gr.

Skattstjóri skal að jafnaði ekki taka til greina umsókn gjaldanda, sbr. 3. gr., nema þeir skattstofnar sem um er að ræða hafi lækkað svo mjög milli áranna 1999 og 2000 að þeir séu meira en 25% lægri en þeir voru á tekjuárinu 1999. Frá þessari reglu má þó víkja ef sérstaklega stendur á að mati skattstjóra.

Ríkisskattstjóra er heimilt að setja nánari reglur um ákvörðun á takmörkun greiðsluskyldu og önnur atriði varðandi framkvæmd þessarar greinar.

5. gr.

Ákvörðun varðandi umsókn skal skattstjóri tilkynna gjaldanda eins fljótt og unnt er og ef fallist er á umsókn skal niðurstaða einnig tilkynnt innheimtuaðila.

6. gr.

Um greiðslur þinggjalda á árinu 2001 fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum XIII. kafla laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 110., 113. og 119. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 9. janúar 2001.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.

Ragnheiður Snorradóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.