Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1282/2013

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 440/2009, um tímabundna aukna endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði og frístundahúsnæði auk annars húsnæðis sem er alfarið í eigu sveitarfélaga.

1. gr.

Í stað "1. janúar 2013{ í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. janúar 2015.

2. gr.

Í stað "1. janúar 2013" í 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. janúar 2015.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða, XV, við lög nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 23. desember 2013.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Elín Árnadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica