Fjármála- og efnahagsráðuneyti

279/2013

Reglugerð um breytingu á reglugerð um vörslu og tollmeðferð vöru nr. 1100/2006, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 37. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðarinnar "30.000" í 2. mgr. kemur: 40.000.
  2. Orðin "á tollskýrslu skv. 1. mgr." í 4. mgr. falla brott.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 185. gr. tollalaga nr. 88/2005, öðlast gildi þegar í stað.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 11. mars 2013.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Ögmundur Hrafn Magnússon.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica