Fjármálaráðuneyti

375/1993

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 255/1993, um vörugjöld af eldsneyti.

Stofnreglugerð:

1. gr.

Af vörugjaldi skv. 1. gr. skulu 36% greidd við tollafgreiðslu, 20% innan 60 daga og 44% innan 90 daga talið frá komudegi flutningsfars.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 28. gr. laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., gildir frá 1. júlí 1993 og tekur til innflutnings á bensíni sem tekið er til tollafgreiðslu frá og með þeim degi.


Fjármálaráðuneytið, 7. september 1993.


F. h. r.

Indriói H. Þorláksson.

Ingibjörg Þorsteinsdóttir.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica