Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

44/2007

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr.:

Í stað "75/1981" í 9. tölulið kemur: 90/2003.

Orðin "og eignarskatt" í 9. tölulið falla brott.

Í stað "67" og "75/1981" í 15. tölulið kemur: 66 og 90/2003.

Orðin "og eignarskatt" í 15. tölulið falla brott.

Við greinina bætist nýr töluliður er orðast svo: Styrkir sem greiddir eru samkvæmt lögum nr. 152/2006, um ættleiðingarstyrki.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.:

Í stað "75/1981" kemur: 90/2003.

Orðin "og eignarskatt" falla brott.

3. gr.

Í stað "75/1981" í 2. mgr. 6. gr. kemur: 90/2003.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr.:

Í stað "75/1981" kemur: 90/2003.

Orðin "og eignarskatt" falla brott.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Ákvæði 5. mgr. 1. gr. öðlast gildi frá 1. janúar 2007.

Fjármálaráðuneytinu, 12. janúar 2007.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.