Fjármála- og efnahagsráðuneyti

65/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1664/2024 um skyldu rekstraraðila stafrænna vettvanga til skýrslugjafar vegna leigu fasteigna og lausafjár og sölu á vörum og þjónustu.

1. gr.

14. tölul. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Seljandi sem gefa skal skýrslu um: Hver sá virki seljandi, annar en undanþeginn seljandi, sem er heimilisfastur í ríki sem er aðili að gildandi skilyrtu samkomulagi milli lögbærra yfirvalda eða hefur með höndum starfsemi við útleigu fasteigna sem staðsettar eru í ríki á Evrópska efnahagssvæðinu.

2. gr.

Í stað "31. janúar" í 1. mgr. 17. gr., 1. mgr. 18. gr., 1. mgr. 19. gr. og 1. mgr. 21. gr. reglugerðarinnar kemur: 20. janúar.

3. gr.

Við 21. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Skilaskyldur rekstraraðili vettvangs skal gera ríkisskattstjóra grein fyrir því sérstaklega eigi síðar en 20. janúar á því ári sem næst fer á eftir því almanaksári sem viðskipti áttu sér stað á vettvanginum, ef um engar tilkynningaskyldar upplýsingar er að ræða.

4. gr.

Fyrirsögn 24. gr. reglugerðarinnar breytist og verður svohljóðandi: Reglur um framfylgni krafna um gagnasöfnun skv. III. kafla.

5. gr.

Í 5. mgr. 26. gr. reglugerðarinnar fellur brott orðið "skýrslu".

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. og 9. mgr. 92. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Ákvæði 2. og 3. gr. reglugerðarinnar öðlast gildi 1. janúar 2027. Önnur ákvæði öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 14. janúar 2026.

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Hildur Berglind Jóhannsdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 29. janúar 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica