Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1494/2025

Reglugerð um orlofs- og desemberuppbætur til ellilífeyrisþega á árinu 2026.

1. gr. Gildissvið og framkvæmd.

Reglugerð þessi gildir um orlofs- og desemberuppbætur til ellillífeyrisþega á árinu 2026.

Orlofsuppbætur skulu greiddar 1. júlí og desemberuppbætur skulu greiddar 1. desember.

Tryggingastofnun annast framkvæmd reglugerðar þessarar.

2. gr. Orlofs- og desemberuppbætur til ellilífeyrisþega.

Fullar orlofs- og desemberuppbætur til ellilífeyrisþega skulu nema 137.857 kr. Skulu 40% fjárhæðarinnar greiðast 1. júlí sem orlofsuppbót og 60% 1. desember sem desemberuppbót.

Orlofs- og desemberuppbætur skulu lækka um 2% af tekjum lífeyrisþega, sbr. 22. gr. laga um almannatryggingar, uns þær falla niður. Þeir sem fá greiddan hálfan ellilífeyri skulu fá 50% af fjárhæð skv. 1. mgr.

Um áhrif búsetu, frestun og flýtingu á töku lífeyris á fjárhæð orlofs- og desemberuppbóta skv. 1. mgr. fer skv. 16., 19. og 20. gr. laga um almannatryggingar.

Hafi ellilífeyrisþegi fengið greiðslur hluta úr ári skulu orlofs- og desemberuppbætur til hans skv. 1. mgr. greiddar í hlutfalli við greiðsluréttindi hans.

Ef fyrir liggur að orlofsuppbætur í júlí hafi verið of- eða vangreiddar skal það leiðrétt við greiðslu desemberuppbóta í desembermánuði og gilda ákvæði 34. gr. laga um almannatryggingar eftir því sem við á.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 63. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1483/2024, um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2025.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 19. desember 2025.

Inga Sæland.

Ásgeir Runólfsson.

B deild - Útgáfudagur: 29. desember 2025

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica