Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1410/2025

Reglugerð um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2025 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

1. gr.Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árleglu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga um tryggingagjald, nr. 113/1990.

Í samræmi við ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2025 nema 0,193% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr.Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorku-lífeyris umfram 2% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
  2. Reikna skal örorkuskuldbindingu hvers sjóðs umfram meðaltal skv. 1. tölul. og ákvarðar sú stærð hlutfall lífeyrissjóðs í framlagi hvers árs.

3. gr.Úthlutun fjárframlags árið 2025.

Samkvæmt 19. gr. laga um tryggingagjald, nr. 113/1990, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2025 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. ákvæði laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2024 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2024 samtals kr. 2.354.759.273.746 og er áætlað fjárframlag ársins 2024 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 4.544.685.398 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Festa lífeyrissjóður 824.040.310 18,13%
Gildi lífeyrissjóður 2.930.246.743 64,48%
Lífeyrissjóður Rangæinga 56.045.660 1,23%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 78.139.710 1,72%
Stapi lífeyrissjóður 656.212.975 14,44%
Samtals 4.544.685.398 100%

Við greiðslu fjárframlags ársins 2026, í október 2026, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2025 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2024.

4. gr.Leiðrétting fjárframlags ársins 2024.

Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2023 er kr. 2.202.455.683.221. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2023 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1540/2024, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2024 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2023 er kr. 2.379.349.125 til hækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2024 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990. Leiðrétting fjárframlags ársins 2024, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1540/2024, nemur því samtals kr. 7.732.884 til hækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2024 eins og það var ákvarðað skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1540/2024 hækka þær fjárhæðir eins og þær eru tilgreindar í eftirfarandi töflu:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 49.684 0,643%
Birta lífeyrissjóður 260.637 3,371%
Eftirlaunasjóður FÍA 15.968 0,207%
Festa lífeyrissjóður 983.623 12,720%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 152.840 1,977%
Gildi lífeyrissjóður 3.034.074 39,236%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 72.689 0,940%
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur 34.063 0,441%
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall 11.329 0,147%
Lífeyrissjóður bænda 19.294 0,250%
Lífeyrissjóður Rangæinga 58.074 0,751%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 3.789 0,049%
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. 3.403 0,044%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 28.805 0,373%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 499.428 6,459%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 134.668 1,742%
Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 455.776 5,894%
Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 135.712 1,755%
Brú lífeyrissj. starfsmanna sveitarfélaga-B L700LsV 13.301 0,172%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 2.204 0,029%
Lífsverk lífeyrissjóður 20.995 0,272%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 656.251 8,487%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 138.419 1,790%
Stapi lífeyrissjóður 834.533 10,792%
SL lífeyrissjóður 113.325 1,466%
Samtals 7.732.884 100%

5. gr.Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga um tryggingagjald, nr. 113/1990, og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð sama efnis nr. 1540/2024.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 2. desember 2025.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Anna V. Ólafsdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 18. desember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica