355/2025
Reglugerð um gildistöku reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um ríkisaðstoð.
1. gr.
Reglugerðir um ríkisaðstoð.
Eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um ríkisaðstoð, sem vísað er til í XV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með viðkomandi ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XV. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun:
- Almenn hópundanþága frá tilkynningarskyldu. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 651/2014 frá 17. júní 2014 þar sem tilgreindir eru tilteknir flokkar aðstoðar sem samrýmast innri markaðnum til beitingar á 107. og 108. gr. sáttmálans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2014 frá 27. júní 2014.
- Viðbót við almenna hópundanþágu frá tilkynningarskyldu. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1084 frá 14. júní 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 651/2014 að því er varðar aðstoð vegna grunnvirkja hafna og flugvalla, tilkynningarmörk fyrir aðstoð vegna menningar og varðveislu menningararfleifðar og aðstoð vegna íþróttagrunnvirkja og fjölnota tómstundagrunnvirkja og svæðisbundin rekstraraðstoðarkerfi á ystu svæðum og breytingu á reglugerð (ESB) nr. 702/2014 að því er varðar útreikning á aðstoðarhæfum kostnaði, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2017 frá 22. september 2017.
- Almenn hópundanþága frá tilkynningarskyldu - framlenging. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/972 frá 2. júlí 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 651/2014 að því er varðar framlengingu á gildistíma hennar og viðeigandi aðlaganir, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2020 frá 6. ágúst 2020.
- Viðbót við almenna hópundanþágu frá tilkynningarskyldu. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1237 frá 23. júlí 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 651/2014 um almenna hópundanþágu frá tilkynningarskyldu þar sem tilgreindir eru tilteknir flokkar aðstoðar sem samrýmast innri markaðnum til beitingar á 107. og 108. gr. sáttmálans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 196/2022 frá 10. júní 2022.
- Viðbót við almenna hópundanþágu frá tilkynningarskyldu. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1315 frá 23. júní 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 651/2014 þar sem tilgreindir eru tilteknir flokkar aðstoðar sem samrýmast innri markaðnum til beitingar á 107. og 108. gr. sáttmálans og reglugerð (ESB) 2022/2473 þar sem tilgreindir eru tilteknir flokkar aðstoðar til fyrirtækja sem eru virk í framleiðslu, vinnslu og markaðssetningu fisk- og lagareldisafurða sem samrýmast innri markaðnum til beitingar á 107. og 108. gr. sáttmálans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 331/2023 frá 8. desember 2023.
- Minniháttaraðstoð vegna þjónustu sem hefur almenna, efnahagslega þýðingu og minniháttaraðstoð - breyting. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2391 frá 4. október 2023 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 717/2014, (ESB) nr. 1408/2013 að því er varðar minniháttaraðstoð á fisk- og lagareldisafurðum og reglugerð (ESB) nr. 717/2014 að því er varðar heildarfjárhæð minniháttaraðstoðar til stakra fyrirtækja, gildistíma hennar og önnur málefni, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2024 frá 26. apríl 2024.
- Minniháttaraðstoð. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2831 frá 13. desember 2023 um beitingu 107. og 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gagnvart minniháttaraðstoð (De minimis), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2024 frá 23. september 2024.
- Minniháttaraðstoð vegna þjónustu er hefur almenna, efnahagslega þýðingu. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2832 frá 13. desember 2023 um beitingu 107. og 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gagnvart minniháttaraðstoð sem veitt er fyrirtækjum sem veita þjónustu er hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 246/2024 frá 25. október 2024.
2. gr.
Birting.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 651/2014, sbr. a-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 23/2015, 23. apríl 2015, bls. 813. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 71/2014, 27. nóvember 2014, bls. 61.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1084, sbr. b-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 67/2017, 19. október 2017, bls. 668. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2017 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 52/2019, 27. júní 2019, bls. 67.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/972, sbr. c-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 62 frá 24. september 2020, bls. 272-275. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2020 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 51/2023, 6. júlí 2023, bls. 41.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1237, sbr. d-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8/2023 frá 26. janúar 2023, bls. 443. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 196/2022 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 66/2022, 13. október 2022, bls. 47.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1315, sbr. e-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 41/2024 frá 16. maí 2024, bls. 39. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 331/2023 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 48/2024, 13. júní 2024, bls. 67.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2391, sbr. f-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83/2024 frá 14. nóvember 2024, bls. 250. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2024 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 60/2024, 8. ágúst 2024, bls. 37.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2831, sbr. g-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85/2024 frá 21. nóvember 2024, bls. 385. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2024 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 92/2024, 19. desember 2024, bls. 63.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2023/2832, sbr. h-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85/2024 frá 21. nóvember 2024, bls. 604. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 246/2024 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 9/2025, 20. febrúar 2025, bls. 29.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 32. gr. samkeppnislaga, nr. 44/2005 og öðlast þegar gildi. Um leið fellur reglugerð nr. 1165/2015 um gildistöku reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um ríkisaðstoð úr gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 18. mars 2025.
F. h. r.
Ingvi Már Pálsson.
Reglugerð sem fellur brott: