Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Breytingareglugerð

93/2023

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð um stuðningslán, nr. 534/2020.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "12" í 2. málsl. 1. mgr. kemur: 18.
  2. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá getur lánastofnun heimilað að lán verði endurgreitt með allt að 18 jöfnum greiðslum á jafn mörgum mánuðum síðasta hluta lánstímans.
  3. Í stað "fimm" og "þremur" í 2. málsl. 2. mgr. kemur: fimm og hálft; og: þremur og hálfu.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 13. gr. og 24. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 31. janúar 2023.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Gunnlaugur Helgason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.