Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

1385/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 555/2020 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Nýr stafliður bætist við 1. mgr., svohljóðandi: Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 448/2013 um að koma á fót málsmeðferð til að ákvarða tilvísunaraðildarríki fyrir rekstraraðila sérhæfðra sjóða utan ESB samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/61/ESB. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 57, frá 13. október 2016, bls. 545-547.
  2. Á eftir orðunum "skv. a-c-lið" í 2. mgr. reglugerðarinnar kemur: og e-lið.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 64. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, öðlast gildi 1. desember 2024.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 28. nóvember 2022.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Elísabet Júlíusdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.