Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

533/2022

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 162/2021.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir dagsetningunni "27. september 2019" í inngangsmálslið greinarinnar kemur: nr. 352/2021 frá 10. desember 2021.
  2. Við 1. tölul. greinarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
    Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1122 frá 8. júlí 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1368 sem bætir NIBOR-vöxtunum á og fjarlægir LIBOR-vextina af skránni yfir mjög mikilvægar viðmiðanir sem notaðar eru á fjármálamörkuðum sem komið var á samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1011, sem er birt í fylgiskjali með reglugerð þessari.

2. gr.

Á undan fylgiskjali 1 kemur nýtt fylgiskjal, sem er birt með reglugerð þessari, sem verður fylgiskjal 1 og breytist númeraröð annarra fylgiskjala í samræmi við það.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í g-lið 1. mgr. 13. gr. laga um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 7/2021, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 20. apríl 2022.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Gunnlaugur Helgason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.