Fara beint í efnið

Prentað þann 26. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 6. mars 2024

358/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 340/2017, um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu.

1. gr.

15. gr. reglugerðarinnar um viðmiðunarfjárhæðir orðist svo:

Reglugerðin gildir um innkaup á vöru, þjónustu eða verki, er varðar starfsemi sem fellur undir reglugerð þessa skv. II. kafla, þar sem áætlað verðmæti án virðisaukaskatts er jafnt eða meira en eftirfarandi:

  1. 64.779.000 kr. þegar um er að ræða vörusamninga og þjónustusamninga og einnig þegar um er að ræða hönnunarsamkeppni.
  2. 808.914.000 kr. þegar um er að ræða verksamninga.
  3. 150.299.000 kr. þegar um er að ræða þjónustusamninga um félagsþjónustu og aðra sértæka þjónustu sem talin er upp í XVII. viðauka.

Innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum skv. 1. mgr. skal bjóða út innanlands sem og á Evrópska efnahagssvæðinu í samræmi við þau innkaupaferli sem nánar er kveðið á um í reglugerðinni.

2. gr.

21. gr. reglugerðarinnar um innkaup sem skipt er upp orðist svo:

Þegar innkaupum á fyrirhuguðu verki eða þjónustu er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga skal miða við samanlagt virði allra samninganna. Sama á við þegar innkaupum á vöru af svipaðri tegund er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga. Sé samanlagt virði allra samninganna yfir viðmiðunarfjárhæðum skal líta svo á að verðgildi hvers og eins samnings sé einnig yfir viðmiðunarmörkum.

Þrátt fyrir að heildarvirði samninga sem greinir í 1. mgr. sé yfir viðmiðunarfjárhæðum er heimilt að gera einstaka samninga án útboðs fyrir allt að 20% af samanlagðri heildarfjárhæð allra samningshluta ef áætlað verðmæti viðkomandi samningshluta, án virðisaukaskatts, er lægra en 12.023.000 kr. vegna vöru eða þjónustu og 150.299.000 kr. vegna verks.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1953 frá 10. nóvember 2021 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/25/ESB að því er varðar viðmiðunarfjárhæðir vegna vöru-, þjónustu- og verksamninga og hönnunarsamkeppna.

Reglugerðin er sett með heimild í 2. mgr. 9. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 261/2020 um breytingu á reglugerð nr. 340/2017, um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 9. mars 2022.

F. h. r.

Sigurður H. Helgason.

Hrafn Hlynsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.