Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

1698/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 381/2019 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2155 frá 22. september 2017 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 149/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um óbeint stöðustofnunarfyrirkomulag, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2020 frá 30. apríl 2020, skal gilda hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 80/2021 frá 16. desember 2021, bls. 1-7.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 15. gr. laga nr. 15/2018, um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 21. desember 2021.

F. h. fjármála- og efnahagsráðherra,

Guðrún Þorleifsdóttir.

Guðmundur Kári Kárason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.