Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Stofnreglugerð

975/2021

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um verðbréfasjóði.

1. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sbr. 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæði og bókun 1 við EES-samninginn:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/438 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/95/EB að því er varðar skyldur vörsluaðila með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2018 frá 23. mars 2018 um upptöku reglugerðarinnar í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6 frá 30. janúar 2020, bls. 49. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 42 frá 25. júní 2020, bls. 64-83.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1619 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/438 að því er varðar varðveisluskyldur vörsluaðila með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 307/2019 frá 13. desember 2019 um upptöku reglugerðarinnar í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14 frá 5. mars 2020, bls. 66. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 42 frá 25. júní 2020, bls. 122-125.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 15., 43., 45.-47., 49.-51. og 1. mgr. 134. gr. laga nr. 116/2021, um verðbréfasjóði, öðlast gildi 1. september 2021.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 24. ágúst 2021.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Elísabet Júlíusdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.