Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

973/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 983/2013 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 583/2010 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB að því er varðar lykilupplýsingar fyrir fjárfesta og skilyrði sem skulu uppfyllt þegar lykilupplýsingar fyrir fjárfesta eða lýsingin er lögð fram á varanlegum miðli öðrum en pappír eða vefsetri.

1. gr.

Í stað orðanna "8. mgr. 52. gr. laga um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði nr. 128/2011, með síðari breytingum" í 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 56., 58., 59. og 1. mgr. 134. gr. laga nr. 116/2021 um verðbréfasjóði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 56., 58., 59. og 1. mgr. 134. gr. laga nr. 116/2021 um verðbréfasjóði, öðlast gildi 1. september 2021.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 24. ágúst 2021.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Elísabet Júlíusdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.