Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

431/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 381/2019 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins skulu gilda hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 77-84:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/822 frá 21. apríl 2016 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 153/2013 að því er varðar tímaramma innlausnartímabils sem taka skal til athugunar fyrir mismunandi flokka fjármálagerninga. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69/2020 frá 29. október 2020, bls. 103-105.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2251 frá 4. október 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 um OTC-afleiður, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla vegna áhættuvarna fyrir OTC-afleiðusamninga sem miðlægur mótaðili hefur ekki stöðustofnað. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 7/2021 frá 28. janúar 2021, bls. 730-767.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/323 frá 20. janúar 2017 um leiðréttingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/2251 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 um OTC-afleiður, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla vegna áhættuvarna fyrir OTC-afleiðusamninga sem miðlægur mótaðili hefur ekki stöðustofnað. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69/2020 frá 29. október 2020, bls. 109-111.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/610 frá 20. desember 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 að því er varðar framlengingu umbreytingartímabilanna í tengslum við lífeyriskerfi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69/2020 frá 29. október 2020, bls. 112-113.
  5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/979 frá 2. mars 2017 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 um OTC-afleiður, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár að því er varðar skrána yfir aðila sem njóta undanþágu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69/2020 frá 29. október 2020, bls. 114-115.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 15. gr. laga nr. 15/2018, um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 7. apríl 2021.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Guðmundur Kári Kárason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.