Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

1426/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 690/2020, um tímabundna endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna.

1. gr.

Í stað dagsetningarinnar "31. desember 2020" í 1. og 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2021.

2. gr.

Fyrirsögn 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður svohljóðandi: Leiðrétting endurgreiðslna vegna mannvirkja.

3. gr.

Í stað "6. mgr." í 9. gr. reglugerðarinnar kemur: 7. mgr.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. mgr. ákvæðis til bráðabirgða nr. XXXIII og 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða nr. XXXIV við lög nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, sbr. 1. mgr. 49. gr. sömu laga, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 21. desember 2020.

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Hlynur Ingason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.