Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

610/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 381/2019 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrjár nýjar málsgreinar svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/396 frá 19. desember 2018 um breytingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2205, framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/592 og framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1178 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 að því er varðar daginn þegar stöðustofnunarskyldan tekur gildi fyrir tilteknar gerðir samninga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 36/2019 frá 29. mars 2019, skal gilda hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 38/2019 frá 16. maí 2019, bls. 22-25.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/397 frá 19. desember 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/2251 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 að því er varðar til hvaða dags mótaðilar geta beitt áhættustýringarferli sínu fyrir tiltekna OTC-afleiðusamninga sem miðlægur mótaðili hefur ekki stöðustofnað, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 37/2019 frá 29. mars 2019, skal gilda hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 38/2019 frá 16. maí 2019, bls. 26-28.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/564 frá 28. mars 2019 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/2251 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 að því er varðar til hvaða dags mótaðilar geta beitt áhættustýringarferli sínu fyrir tiltekna OTC-afleiðusamninga sem miðlægur mótaðili hefur ekki stöðustofnað, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 104/2019 frá 11. apríl 2019, skal gilda hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 38/2019 frá 16. maí 2019, bls. 163-165.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 15. gr. laga nr. 15/2018, um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 4. júní 2020.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Guðmundur Kári Kárason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.