Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 24. des. 2021

274/2020

Reglugerð um innleiðingu framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/980 um sniðmát, efni, athugun og staðfestingu lýsinga sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði.

1. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/980 frá 14. mars 2019 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129 að því er varðar sniðmát, efni, athugun og staðfestingu lýsinga sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og um niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 809/2004, sem birt er á bls. 356 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 26. mars 2020 og var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 188/2019 frá 10. júlí 2019, með þeim aðlögunum sem leiðir af bókun 1 um altæka aðlögum við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993, með breytingum samkvæmt:

  1. Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1273 frá 4. júní 2020 um breytingu og leiðréttingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/980 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129 að því er varðar sniðmát, efni, athugun og staðfestingu lýsinga sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Reglugerðin er birt á bls. 316-333 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusabandsins nr. 80 frá 16. desember 2021 og var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 172/2021 frá 11. júní 2021, með þeim aðlögunum sem leiðir af bókun 1 um altæka aðlögum við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 19. gr. laga um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, nr. 14/2020, öðlast gildi 1. apríl 2020.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.