Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1031/2017

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu og kynningu á tilteknum áfengum drykkjum (V).

1. gr. Gildissvið.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XXVII. kafla II. viðauka samningsins (brenndir drykkir), gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.

Innflutningur og markaðssetning á brenndum drykkjum er heimil eftir því sem tilgreint er í XXVII. kafla II. viðauka samningsins.

2. gr. Innleiðing reglugerðar.

Eftirfarandi reglugerð Evrópusambandsins um leyfilega framleiðsluferla til framleiðslu kryddblandaðra vínafurða á tilteknum áfengum drykkjum skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/670 frá 31. janúar 2017 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 67/2017, 19. október 2017, bls. 597), um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 251/2014 að því er varðar leyfilega framleiðsluferla til framleiðslu kryddblandaðra vínafurða, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2017, frá 22. september 2017, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.

3. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 14. nóvember 2017.

F. h. r.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Steinar Örn Steinarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.