Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 21. maí 2020

957/2017

Reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts og áfengisgjalds til sendimanna erlendra ríkja.

1. gr.

Við kaup á vörum eða þjónustu innanlands ber sendimönnum erlendra ríkja að greiða virðisaukaskatt, áfengisgjald og aðra óbeina skatta eftir þeim reglum sem almennt gilda á Íslandi um þau viðskipti.

Sendimenn erlendra ríkja, þ.m.t. erlend sendiráð og sendierindrekar, eiga rétt á því að fá endurgreiddan virðisaukaskatt og áfengisgjald af kaupum á vörum og þjónustu innanlands, þó ekki vöru og þjónustu sem fellur undir 4. gr. og matvælum öðrum en áfengi, enda sé því lýst yfir að viðkomandi vara og þjónusta sé eingöngu ætluð til notkunar fyrir erlent sendiráð eða til persónulegra nota sendierindreka og þeirra venslamanna hans er teljast til heimilisfólks, sbr. 2. mgr. 43. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Vara og þjónusta skal vera í eðlilegu magni og umfangi miðað við tilgang kaupanna hverju sinni og skal ætlað að ná yfir raunverulegar þarfir erlends sendiráðs, sendierindreka og þeirra venslamanna hans er teljast til heimilisfólks og hafa fasta búsetu hér á landi.

Endurgreiða skal virðisaukaskatt vegna vinnu manna sem unnin er á byggingarstað við nýbyggingu embættisbústaðar sendiherra eða skrifstofuhúsnæðis sendiráðs, þ.m.t. vinnu við framkvæmdir á lóð hússins, jarðvegslagnir umhverfis hús, girðingar, bílskúra og garðhús. Endurgreiðsla virðisaukaskatts tekur á sama hátt til allrar vinnu manna við endurbætur og viðhald framangreinds húsnæðis. Endurgreiðsla skal taka til uppsetningar og kaupa á hleðslustöð fyrir bifreiðar til uppsetningar í eða við embættisbústað sendiherra eða skrifstofuhúsnæðis sendiráðs, sbr. ákvæði til bráðabirgða XXXII í lögum nr. 50/1988. Jafnframt skal endurgreiða virðisaukaskatt af leigugjaldi sem greitt er fyrir notkun á húsnæði sem er embættisbústaður sendiherra eða skrifstofuhúsnæði sendiráðs. Þó skal ekki endurgreiða virðisaukaskatt vegna þjónustu sem tengist rekstri húseignarinnar.

2. gr.

Utanríkisráðuneytið afgreiðir beiðni um endurgreiðslu og skal hún vera á því formi sem það ákveður.

Með beiðni skulu fylgja afrit sölureikninga, prentuð eintök rafrænna sölureikninga eða eftir atvikum afrit annarra tekjuskráningargagna. Gögn sem lögð eru fram til grundvallar beiðni um endurgreiðslu skulu vera í samræmi við ákvæði 20. og 21. gr. laga nr. 50/1988, og fullnægja skilyrðum II. kafla, sbr. einnig 15. gr., reglugerðar nr. 50/1993, um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila. Virðisaukaskattur sem endurgreiðslubeiðni tekur til skal vera vegna kaupa á vöru eða þjónustu hér á landi. Þá skal seljandi vöru eða þjónustu hér á landi vera skráður á virðisaukaskattsskrá þegar viðskipti eiga sér stað. Utanríkisráðuneytið gengur úr skugga um að endurgreiðslubeiðni ásamt fylgigögnum uppfylli skilyrði reglugerðar þessarar.

Utanríkisráðuneytið skal tilkynna umsækjanda um ákvörðun sína um endurgreiðslu. Tilkynning um ákvörðun skal send með almennri póstsendingu eða rafrænt á því formi sem utanríkisráðuneytið ákveður. Með tilkynningu ráðuneytisins skulu þau frumgögn endursend sem kunna að hafa verið lögð fram með umsókn.

Utanríkisráðuneytið skal tilkynna um ákvörðun sína til Fjársýslu ríkisins sem annast endurgreiðslu.

Ekki verður um endurgreiðslu að ræða nema heildarfjárhæð einstaks reiknings nemi a.m.k. 13.000 kr. með virðisaukaskatti og fjárhæðin sé greidd í einu lagi. Krafan um lágmarksfjárhæð skal þó ekki eiga við um greiðslu kostnaðar vegna síma, nettengingar, öryggiskerfis, sorphirðu, fráveitugjalda og annars beins rekstrarkostnaðar sendiráðs, s.s. vegna kaupa á rafmagni og heitu vatni. Utanríkisráðuneytið skal heimila endurgreiðslu innsendra reikninga vegna fastra mánaðarlegra reikningsviðskipta nái heildarfjárhæð slíkra reikninga a.m.k. 13.000 kr. með virðisaukaskatti, sbr. þó 2. málsl. Utanríkisráðuneytið skal á ári hverju endurskoða lágmarksfjárhæð einstaks reiknings, sbr. 1. málsl, og leggja til við fjármála- og efnahagsráðuneytið breytingar á fjárhæðarmörkum ef þörf þykir.

Utanríkisráðuneytið skal afgreiða beiðnir um endurgreiðslu 1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember ár hvert. Utanríkisráðuneytið tekur beiðni aðeins til greina hafi hún verið samþykkt af hálfu sendiráðs eða fulltrúa þess sem hefur heimild til þess að samþykkja beiðni um endurgreiðslu virðisaukaskatts. Endurgreiðsla skal berast til innlendrar bankastofnunar. Réttur til endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari fellur niður ef beiðni um endurgreiðslu berst utanríkisráðuneytinu eftir að sex ár eru liðin frá því að réttur til endurgreiðslu stofnaðist, sbr. 1. mgr. 43. gr. A, laga nr. 50/1988.

Reikningar þeir sem endurgreiðslubeiðni er byggð á skulu vera greiddir. Staðfesting á greiðslu skal fylgja greiddum reikningum, svo sem greiðslukvittun eða kvittun um millifærslu úr banka.

Endurgreiðsla virðisaukaskatts og áfengisgjalds samkvæmt reglugerð þessari er háð því að heimaland viðkomandi sendiráðs, eða sendierindreka, veiti gagnkvæman endurgreiðslurétt til íslenskra sendiráða eða sendierindreka.

3. gr.

Um innflutning gilda ákvæði 4. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum.

4.gr.

Virðisaukaskattur er ekki endurgreiddur af eftirfarandi vörum og þjónustu:

  1. fornmunum,
  2. uppboðsmunum,
  3. gjafakortum og gjafavörum,
  4. aðgangi að vegamannvirkjum,
  5. vörum og þjónustu vegna hvers kyns afþreyingar, s.s. aðgangseyris að kvikmynda- og leikhúsum, sýningum, bókum o.fl.,
  6. aðildargjöldum að félögum og samtökum,
  7. lyfjum,
  8. byggingarkostnaði vegna byggingar, endurbóta eða viðhalds á íbúðarhúsnæði í eigu sendierindreka eða venslamanna hans,
  9. útgjöldum vegna tryggingamála, s.s. tryggingabótum, þegar útgjöld eru greidd af tryggingafélagi eða öðrum aðila.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 43. gr. og 49. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, 3. mgr. 6. gr. og 12. gr. laga nr. 96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt er úr gildi felld reglugerð nr. 470/1991, um endurgreiðslu virðisaukaskatts til sendimanna erlendra ríkja.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.