Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

940/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1240/2015 um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála.

1. gr.

Fylgiskjal með reglugerðinni sem inniheldur lista yfir lögsagnarumdæmi sem eru þátttakendur skv. a- og b-lið 39. tölul. 2. gr. reglugerðarinnar verður fylgiskjal I. Við reglugerðina bætist nýtt fylgiskjal II um tilkynningarskyld lögsagnarumdæmi skv. a- og b-lið 38. tölul. 2. gr. reglugerðarinnar.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. mgr. 92. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003, tekur þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 26. október 2017.

F. h. r.

Ingbjörg Helga Helgadóttir.

Ása Ögmundsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.