Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

78/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1188/2014, um endurgreiðslu á virðisaukaskatti til aðila búsettra erlendis.

1. gr.

Í stað 2. málsl. 3. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Endurgreiðsla skal að lágmarki vera í samræmi við fjárhæðir og viðmið sem birt eru í fylgiskjali með reglugerð þessari. Sama gildir ef vörusala á sama sölureikningi ber bæði 24% og 11% virðisaukaskatt.

2. gr.

Í stað orðanna "Endurgreiðslan skal ætíð ákvörðuð í hundruðum króna" í A-lið fylgiskjals reglugerðarinnar koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ef aðeins hluti vara á sölureikningi ber 24% virðisaukaskatt og sölufjárhæð þess hluta nemur minna en kr. 6.000 skal endurgreiða 13% af þeirri fjárhæð. Endurgreiðslan skal ætíð ákvörðuð í heilum fimm tugum króna.

3. gr.

Í stað orðanna "Endurgreiðslan skal ætíð ákvörðuð í hundruðum króna" í B-lið fylgiskjals reglugerðarinnar koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ef aðeins hluti vara á sölureikningi ber 11% virðisaukaskatt og sölufjárhæð þess hluta nemur minna en kr. 6.000 skal endurgreiða 6% af þeirri fjárhæð. Endurgreiðslan skal ætíð ákvörðuð í heilum fimm tugum króna.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett með stoð í 1. mgr. 43. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, öðlast gildi þegar í stað.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 29. janúar 2015.

F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.

Benedikt S. Benediktsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.