1. gr.
Við 1. gr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 176/2014 frá 25. febrúar 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1031/2010, einkum í því skyni að ákvarða fjölda heimilda til losunar gróðurhúsalofttegunda sem verða boðnar upp 2013-2020 sem vísað er til í tölulið 21 ala, III. kafla XX. viðauka samningsins, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 196/2014, frá 25. september 2014, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun I við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64 frá 30. október 2014, 2014/EES/64/41, bls. 380-382.
2. gr.
Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 176/2014 frá 25. febrúar 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1031/2010, einkum í því skyni að ákvarða fjölda heimilda til losunar gróðurhúsalofttegunda sem verða boðnar upp 2013-2020 sem vísað er til í tölulið 21 ala, III. kafla XX. viðauka samningsins, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 196/2014, frá 25. september 2014.
3. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 28. gr. laga nr. 70/2012, um loftslagsmál, og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 9. desember 2014.
F. h. r.
Lilja Sturludóttir.
Guðrún Ögmundsdóttir.