Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1183/2014

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði, með síðari breytingum.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Skilyrði endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari er að seljandi vöru og þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá á því tímamarki þegar viðskipti eiga sér stað.

2. gr.

Á eftir orðinu "Vinnu" í 2. tölul. 4. gr. reglugerðarinnar bætist: stjórnenda skrán­ingar­skyldra ökutækja,.

3. gr.

Í stað orðanna "skattstjóra í því umdæmi þar sem þeir eiga lögheimili" í 1. mgr. 7. gr. og 12. gr. reglugerðarinnar kemur: ríkisskattstjóra.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður svohljóðandi: Ef sótt er um endurgreiðslu með rafrænum hætti getur ríkisskattstjóri heimilað að rafrænn sölureikningur, myndrit sölureiknings eða hreyfingarlistar fylgi endurgreiðslubeiðni í stað frumrits sölu­reiknings.
  2. Í stað orðsins "skattstjóra" tvisvar sinnum í 3. mgr. kemur: ríkisskattstjóra.
  3. Við greinina bætist ný málsgrein svohljóðandi: Skylt er að varðveita sölureikninga og önnur gögn sem umsókn byggist á í sjö ár frá lokum þess árs er sótt var um endurgreiðslu.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað hlutfallstölunnar "24,5%" í 1. mgr. kemur: 24%.
  2. Í stað hlutfallstölunnar "7,75%" í a lið 1. mgr. kemur: 7,60%.
  3. Í stað hlutfallstölunnar "8,75%" í b lið 1. mgr. kemur: 8,60%.
  4. Í stað hlutfallstölunnar "6,25%" í c lið 1. mgr. kemur: 6,15%.
  5. Í stað hlutfallstölunnar "5,45%" í 3. mgr. kemur: 5,35%.

6. gr.

Í stað orðanna "14 dögum eftir að skattstjóra" í 3. málsl. 2. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar kemur: 30 dögum eftir að ríkisskattstjóra.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "Skattstjóri" tvisvar sinnum í 1. mgr. kemur: Ríkisskattstjóri.
  2. Í stað orðsins "skattstjóri" í 2. mgr. kemur: ríkisskattstjóri.

8. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "skattstjóri" kemur: ríkisskattstjóri.
  2. Í stað orðsins "skattstjóra" kemur: ríkisskattstjóra.

9. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. janúar 2015.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 19. desember 2014.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Guðrún Þorleifsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica