Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

779/2014

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 698/2014, um samræmt verklag og viðmið við leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána.

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Með endurbótum á íbúðarhúsnæði í skilningi 2. mgr. 19. gr. laga nr. 35/2014 er m.a. átt við viðbyggingar, breytingar á innra skipulagi, breytingar á fylgifé fasteignar og verulegar lóðaframkvæmdir. Sama á m.a. við um viðgerðir á þaki, klæðningu og gluggum þar sem nýtt kemur í stað þess eldra eða sem viðbót við hið eldra. Til fylgifjár fasteigna telst það sem varanlega er skeytt við fasteignina eða sérstaklega sniðið að henni, sbr. 24. gr. laga nr. 40/2002, um fasteignakaup. Hér undir falla ekki kaup á húsgögnum og öðru lausafé, sem almennt telst ekki fylgifé fasteignar. Lán sem tekin voru vegna endurbóta geta að hluta eða öllu leyti legið til grundvallar útreikningi á leiðréttingu verðtryggra fasteignaveðlána.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 17. gr. laga nr. 35/2014, um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 28. ágúst 2014.

F. h. r.

Hafdís Ólafsdóttir.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.