Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

861/2012

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (réttindi úr lífeyrissjóðum og til barnabóta (II)).

1. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1244/2010 frá 9. desember 2010 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa og á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 883/2004, skal öðlast gildi hér á landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2012 frá 10. febrúar 2012 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) og bókun 37 við EES-samninginn, sbr. einnig 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið með síðari breytingum og bókun 1 við EES-samninginn.

Reglugerðin skal gilda með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

2. gr.

Í reglugerð þessari er kveðið á um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1244/2010 varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 443/2012 og fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með.

Í reglugerð nr. 860/2012 er mælt fyrir um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 og velferðarráðuneytið fer með.

3. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1244/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54/2012 frá 27. september 2012, bls. 230.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34/2012 frá 21. júní 2012, bls. 29.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 56. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, og A-lið 68. gr. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 9. október 2012.

F. h. r.

Hafdís Ólafsdóttir.

Haraldur Steinþórsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.