Fjármálaráðuneyti

1257/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 686/2005, um tímabundna endurgreiðslu 2/3 hluta virðisaukaskatts vegna kaupa eða leigu hópferðabifreiða. - Brottfallin

1. gr.

Í stað "31. desember 2011" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2012.

2. gr.

Í stað "31. desember 2011" í 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2012.

3. gr.

6. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Reglugerð þessi er sett með heimild í 1. mgr. 49. gr. laga nr. 50/1988, með síðari breytingum, og ákvæði til bráðabirgða, X, við lög nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í ákvæði til bráðabirgða, X, við lög nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. janúar 2012.

Fjármálaráðuneytinu, 27. desember 2011.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Hlynur Ingason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica