Fara beint í efnið

Prentað þann 26. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 20. des. 2023

1407/2022

Reglugerð um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2022 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

1. gr. Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.

Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2022 nema 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr. Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyrissjóða á næstliðnu ári.
  2. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
  3. Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

3. gr. Úthlutun fjárframlags árið 2022.

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2022 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2021 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2021 samtals kr. 1.645.871.703.698 og er áætlað fjárframlag ársins 2021 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 5.349.083.037 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 31.345.627 0,586%
Birta lífeyrissjóður 184.061.947 3,441%
Eftirlaunasjóður FÍA 8.825.987 0,165%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L060EsRb 1.283.780 0,024%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH 3.423.413 0,064%
Festa lífeyrissjóður 675.803.151 12,634%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 121.023.004 2,263%
Gildi lífeyrissjóður 2.154.022.248 40,269%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 41.294.921 0,772%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA 2.112.888 0,040%
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur 23.188.275 0,434%
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall 13.345.962 0,250%
Lífeyrissjóður bænda 15.218.141 0,285%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN 374.436 0,007%
Lífeyrissjóður Rangæinga 34.100.404 0,638%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 3.075.723 0,058%
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. 5.188.611 0,097%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH 1.043.071 0,020%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L400LK 3.423.413 0,064%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 23.910.401 0,447%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 346.700.817 6,482%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 128.886.156 2,410%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 250.871.994 4,690%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 95.481.132 1,785%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV 2.219.869 0,042%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 1.925.670 0,036%
Lífsverk lífeyrissjóður 12.142.418 0,227%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 444.161.110 8,304%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 105.082.736 1,965%
Stapi lífeyrissjóður 567.591.201 10,611%
SL lífeyrissjóður 47.954.529 0,897%

Samtals


5.349.083.037


100,000%

Við greiðslu fjárframlags ársins 2023, í október 2023, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2022 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2021.

4. gr. Leiðrétting fjárframlags ársins 2021.

Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2020 er kr. 1.562.377.686.548. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2020 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1466/2021, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2021 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2020 er kr. 67.375.236.290 til hækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2021 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétting fjárframlags ársins 2021, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1466/2021, nemur því samtals kr. 218.969.518 til hækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2022 eins og það er ákvarðað skv. 3. gr. lækkar þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í eftirfarandi töflu:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 1.114.555 0,509%
Birta lífeyrissjóður 7.754.805 3,542%
Eftirlaunasjóður FÍA 426.991 0,195%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L060EsRb 40.509 0,019%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH 214.590 0,098%
Festa lífeyrissjóður 31.733.063 14,492%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 6.090.637 2,782%
Gildi lífeyrissjóður 84.390.852 38,540%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 1.855.767 0,848%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA 100.726 0,046%
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur 927.336 0,424%
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall 753.255 0,344%
Lífeyrissjóður bænda 792.670 0,362%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN 16.423 0,008%
Lífeyrissjóður Rangæinga 1.543.735 0,705%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 140.140 0,064%
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. 143.425 0,066%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH 71.165 0,033%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L400LK 136.856 0,063%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 1.133.167 0,518%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 13.504.945 6,168%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 6.699.372 3,060%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 6.258.149 2,858%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 2.946.235 1,346%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV 97.441 0,045%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 87.588 0,040%
Lífsverk lífeyrissjóður 597.787 0,273%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 16.053.750 7,332%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 4.864.408 2,222%
Stapi lífeyrissjóður 25.575.640 11,680%
SL lífeyrissjóður 2.903.536 1,326%

Samtals


218.969.518


100,000%

5. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi eldri reglugerð nr. 1466/2021 sama efnis.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 1. desember 2022.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Anna V. Ólafsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.