Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1094/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1165/2016, um fasta starfsstöð.

1. gr.

Á eftir 7. gr. reglugerðarinnar kemur nýtt ákvæði, svohljóðandi:

Heimaskrifstofa.

Starf innt af hendi á Íslandi frá vinnuaðstöðu á heimili eða eftir atvikum aðsetri launþega í þágu erlends vinnuveitanda, vegna starfsemi hans erlendis, myndar ekki fasta starfsstöð vinnuveitandans enda séu öll eftirfarandi skilyrði uppfyllt:

  1. Almennur vinnustaður launþegans hjá vinnuveitandanum er erlendis.
  2. Vinnan er innt af hendi frá vinnuaðstöðu sem launþeginn kemur sér upp á heimili sínu eða aðsetri án atbeina vinnuveitandans.
  3. Vinnuveitandinn hefur ekki aðgang að eða yfirráð yfir vinnuaðstöðunni.
  4. Vinnuframlagi launþegans er alfarið komið til skila í gegnum rafræna miðla til afnota í atvinnustarfsemi vinnuveitandans erlendis.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 7. mgr. 3. gr. a. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 27. október 2020.

Bjarni Benediktsson.

Vilmar Freyr Sævarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.