Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

970/2021

Reglugerð um fjárfestingarheimildir verðbréfasjóða og upplýsingagjöf.

Birta efnisyfirlit

I. KAFLI Gildissvið.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um rekstur og starfsemi verðbréfasjóða samkvæmt lögum um verðbréfasjóði nr. 116/2021.

II. KAFLI Fjárfestingarheimildir verðbréfasjóða.

2. gr. Framseljanleg verðbréf, skv. 1. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021.

Fjármálagerningar sem uppfylla eftirfarandi skilyrði teljast framseljanleg verðbréf í skilningi 1. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021:

  1. Tap verðbréfasjóðs vegna viðskipta með þau takmarkast við þá fjárhæð sem sjóðurinn greiddi fyrir verðbréfin.
  2. Seljanleiki verðbréfanna raskar ekki getu verðbréfasjóðs til að verða við kröfum hlutdeildarskírteinishafa um innlausn þeirra í samræmi við 61. gr. laga nr. 116/2021.
  3. Fyrir liggi áreiðanlegt verðmat:

    1. Ef um er að ræða verðbréf sem hafa verið skráð eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði skv. 1. og 2. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021, skulu þau lúta nákvæmu, áreiðanlegu og reglubundnu verði, annaðhvort markaðsverði eða verði sem er aðgengilegt með matskerfum sem eru óháð útgefendum.
    2. Ef um er að ræða aðrar eignir sem falla undir 8. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021, skulu þau lúta reglubundnu mati sem byggist á upplýsingum frá útgefanda verðbréfanna eða á samkeppnishæfum fjárfestingar- og fjármálagreiningum.
  4. Eftirfarandi upplýsingar liggi fyrir:

    1. Þegar um er að ræða verðbréf sem hafa verið skráð eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði skv. 1. og 2. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 skulu upplýsingar til markaðarins um verðbréfin vera reglulegar, nákvæmar og alhliða.
    2. Þegar um er að ræða aðrar eignir skv. 8. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 skulu upplýsingar til verðbréfasjóðsins um verðbréfin, vera reglubundnar og nákvæmar.
  5. Hægt er að eiga viðskipti með verðbréfin á fjármagnsmarkaði.
  6. Fjárfesting í verðbréfunum skal vera í samræmi við fjárfestingarmarkmið og/eða fjárfestingarstefnu verðbréfasjóðsins.
  7. Áhætta verðbréfa falli undir áhættustýringu rekstrarfélags sjóðsins.

Að því er varðar 2. og 5. tölul. 1. mgr. skal litið svo á að fjármálagerningar, sem eru skráðir eða verslað er með á skipulegum markaði í samræmi við 1. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 hafi ekki áhrif á innlausnarskyldu verðbréfasjóðs, sbr. 61. gr. laga nr. 116/2021, nema verðbréfasjóður búi yfir upplýsingum sem myndu leiða til annarrar niðurstöðu. Einnig skal litið svo á að þeir séu framseljanlegir.

3. gr. Verðbréf í lokuðum sjóðum (closed-end funds).

Til framseljanlegra verðbréfa í skilningi 1. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 teljast einnig fjármálagerningar sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. Hlutir í lokuðum sjóðum sem hafa verið stofnaðir sem sjálfrekinn sjóður (e. investment company) eða fjárhaldssjóðir (e. unit trust) sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

    1. uppfylla skilyrði 2. gr.,
    2. hlíta reglum eða viðurkenndum leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gilda um félög,
    3. fari annar lögaðili með eignastýringu fyrir hönd lokaðs sjóðs þá lúti hann sambærilegum lögum og reglum og gilda um fjárfestavernd á fjármálamarkaði.
  2. Hlutir í lokuðum sjóðum sem hafa stofnast með samningum og uppfylla eftirfarandi skilyrði:

    1. uppfylla skilyrði 2. gr.,
    2. hlíta reglum eða viðurkenndum leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem jafngilda þeim er gilda um félög,
    3. er stjórnað af aðila sem lýtur sambærilegum lögum og reglum og gilda um fjárfestavernd á fjármálamarkaði hér á landi.

4. gr. Aðrir fjármálagerningar sem teljast til framseljanlegra verðbréfa.

Til framseljanlegra verðbréfa skv. 1. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 teljast einnig fjármálagerningar sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. uppfylla skilyrði 2. gr.,
  2. eru tryggðir eða tengjast frammistöðu annarra eigna, sem kunna að vera aðrar eignir en þær sem kveðið er á um í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021.

Hafi fjármálagerningur skv. 1. mgr. að geyma innbyggða afleiðu, sbr. 13. gr. reglugerðar þessarar, skulu ákvæði 66. gr. laga nr. 116/2021 gilda um hann.

5. gr. Hugtakið peningamarkaðsgerningur, skv. 16. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 116/2021.

Með peningamarkaðsgerningum er átt við fjármálagerninga sem eru skráðir eða sem teknir hafa verið til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. 1. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 og fjármálagerninga sem ekki eru skráðir á skipulegum markaði, sbr. 7. tölul. 2. mgr. 64. gr. sömu laga.

Litið skal svo á að þegar vísað er til peningamarkaðsgerninga, sbr. 16. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 116/2021, sem viðskipti fara venjulega fram með á peningamarkaði, sé átt við fjármálagerninga sem uppfylla eitt eftirtalinna skilyrða:

  1. líftími þeirra við útgáfu er 397 dagar eða skemmri,
  2. eftirstöðvatími þeirra er 397 dagar eða skemmri,
  3. þeir lúta reglubundinni arðsemisaðlögun (e. yield adjustment) í samræmi við aðstæður á peningamarkaði á a.m.k. 397 daga fresti, eða
  4. áhættusnið þeirra, þ.m.t. láns- og vaxtaáhætta, samsvarar þeim fjármálagerningum sem hafa líftíma, sem um getur í a- og b-liðum eða eru háðir arðsemisaðlögun skv. c-lið.

6. gr. Auðseljanlegir fjármálagerningar sem unnt er að verðmeta nákvæmlega hvenær sem er.

Þegar vísað er til þess að peningamarkaðsgerningar skv. 16. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 116/2021 skuli vera auðseljanlegir (e. liquid), er átt við að þá skuli vera hægt að selja með litlum tilkostnaði á tiltölulega skömmum tíma, með hliðsjón af skyldu verðbréfasjóðsins og reglum þar um, til endurkaupa eða innlausnar hlutdeildarskírteina að ósk eiganda þeirra.

Peningamarkaðsgerninga skal vera unnt að verðmeta hvenær sem er. Litið er svo á að átt sé við fjármálagerninga sem unnt er að meta með tiltækum, nákvæmum og áreiðanlegum verðmatskerfum sem uppfylla neðangreindar kröfur:

  1. geri verðbréfasjóði kleift að reikna innra virði sjóðs (e. net asset value) í samræmi við það verð, sem fengist fyrir fjármálagerning í eignasafni, ef viðskipti fara fram milli aðila sem eru upplýstir, fúsir til viðskipta og um armslengdar viðskipti er að ræða,
  2. kerfið er annaðhvort byggt á markaðsgögnum eða á virðislíkönum, þ.m.t. kerfi sem byggist á afskrifuðu kostnaðarverði.

Litið skal svo á að viðmiðanirnar, sem vísað er til í 1. og 2. mgr., séu uppfylltar þegar um er að ræða fjármálagerninga sem venjulega er verslað með á peningamarkaði, í skilningi 16. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 116/2021, og skráðir eru eða verslað er með á skipulegum markaði í samræmi við a-, b- og c-lið 1. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021, nema verðbréfasjóðurinn hafi tiltækar upplýsingar sem myndu leiða til annarrar ákvörðunar.

7. gr. Verðbréfunaraðili með aðgang að lánalínu hjá lánastofnun, sbr. 3. tölul. d-liðar 7. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021.

Tilvísun í 2. mgr. 64. gr. laga nr.116/2021 til verðbréfunaraðila vísar til þess að um sé að ræða fyrirtæki, sjóði eða samninga, sem komið er á fót í þeim tilgangi að reka starfsemi um verðbréfun.

Með lánalínu hjá lánastofnun (e. banking liquidity line) í 3. tölul. d-liðar 7. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 er átt við bankastarfsemi sem veitt er af fjármálastofnun sem uppfyllir skilyrði c-liðar 7. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr.116/2021.

8. gr. Peningamarkaðsgerningar utan skipulegra markaða þar sem útgáfa eða útgefandi falla undir reglur sem hafa þann tilgang að vernda fjárfesta og sparifé, sbr. 7. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021.

Verðbréfasjóði er aðeins heimilt að binda fé sitt í peningamarkaðsgerningum, sem viðskipti eru stunduð með utan skipulegra markaða, þegar útgáfa eða útgefandi þeirra falla undir reglur sem hafa þann tilgang að vernda fjárfesta og sparifé, skv. 7. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 sem og að peningamarkaðsgerningarnir uppfylli að auki eftirfarandi skilyrði:

  1. uppfylla eitt af skilyrðum 2. mgr. 5. gr. og öll skilyrði 1. og 2. mgr. 6. gr.,
  2. viðeigandi upplýsingar séu tiltækar um peningamarkaðsgerningana, þ.m.t. upplýsingar sem gera það kleift að hægt sé að framkvæma mat á útlánaáhættu (e. credit risk) í tengslum við fjárfestingu í slíkum gerningum, sbr. 9. gr.,
  3. vera framseljanleg án takmarkana.

9. gr. Nánar um upplýsingar um peningamarkaðsgerninga skv. b-lið 8. gr.

Þegar um peningamarkaðsgerninga, sem b- og d-liðir 7. tölul. 64. gr. laga nr. 116/2021 taka til, eða peningamarkaðsgerninga sem eru útgefnir af staðar- eða svæðisyfirvöldum aðildarríkis eða opinberri, alþjóðlegri stofnun en eru án ábyrgðar aðildarríkis, eða ef um ríki á Evrópska efnahagssvæðinu er að ræða, skulu upplýsingar um gerningana sem vísað er til í b-lið 8. gr. vera eftirfarandi:

  1. upplýsingar um bæði útgefanda eða útgáfuáætlun og um lagalega og fjárhagslega stöðu útgefanda skulu liggja fyrir áður en peningamarkaðsgerningurinn er útgefinn,
  2. upplýsingar skv. a-lið skulu reglulega uppfærðar og ætíð þegar mikilvægir atburðir eiga sér stað,
  3. upplýsingar skv. a-lið skulu sannprófaðar af viðurkenndum þriðja aðila sem tekur ekki við fyrirmælum frá útgefanda,
  4. aðgengilegar og áreiðanlegar tölulegar upplýsingar um útgáfuna eða útgáfuáætlunina.

Þegar um er að ræða peningamarkaðsgerninga sem eru útgefnir samkvæmt c-lið 7. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021, skulu upplýsingar sem vísað er til í b-lið 8. gr. vera eftirfarandi:

  1. upplýsingar um útgáfu eða útgáfuáætlun eða um lagalega- og fjárhagslega stöðu útgefanda fyrir útgáfu peningamarkaðsgerningsins,
  2. upplýsingarnar skv. a-lið. skulu reglulega uppfærðar og ætíð þegar mikilvægir atburðir eiga sér stað,
  3. aðgengilegar og áreiðanlegar tölulegar upplýsingar um útgáfuna eða útgáfuáætlunina eða önnur gögn sem gera kleift að framkvæma viðeigandi mat á útlánaáhættu (e. credit risk) í tengslum við fjárfestingu í gerningunum.

Um peningamarkaðsgerninga skv. a-lið 7. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr.116/2021, að undanskildum þeim sem getið er um í 1. mgr. þessarar greinar og þeim sem gefnir eru út af Seðlabanka Evrópu og seðlabönkum á Evrópska efnahagssvæðinu, gildir að upplýsingar samkvæmt b-lið 8. gr. skulu samanstanda af upplýsingum um útgáfuna eða útgáfuáætlun, eða um lagalega og fjárhagslega stöðu útgefanda fyrir útgáfu peningamarkaðsgerningsins.

10. gr. Útgefandi peningamarkaðsgerninga utan skipulegra markaða þar sem útgáfa eða útgefandi sætir eftirliti skv. c-lið 7. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021.

Verðbréfasjóði er aðeins heimilt að binda fé sitt í peningamarkaðsgerningum sem viðskipti eru stunduð með utan skipulegra markaða ef útgefandi skv. c-lið 7. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021, uppfyllir eitt af eftirtöldum skilyrðum:

  1. er staðsettur á Evrópska efnahagssvæðinu,
  2. er staðsettur í einu af iðnríkjunum tíu innan OECD,
  3. er í metnum fjárfestingarflokki (e. investment grade rating),
  4. unnt sé að sýna fram á með ítarlegri greiningu á útgefanda, að varfærnisreglur sem taka til útgefandans, séu a.m.k. sambærilegar og jafnstrangar og varfærnisreglur skv. gildandi lögum og reglum á fjármálamarkaði hér á landi.

11. gr. Aðrar seljanlegar eignir, skv. 25. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 116/2021, sem eru afleiður.

Til þess að afleiður falli undir hugtakið aðrar seljanlegar eignir, sbr. 25. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 116/2021, skulu undirliggjandi þættir þeirra samanstanda af einu eða fleiri eftirfarandi atriða:

  1. eignum, eins og hugtakið er skilgreint í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021, þ.m.t. fjármálagerningum sem hafa eitt eða fleiri einkenni þessara eigna,
  2. vöxtum,
  3. miða við gengi gjaldmiðla eða verðbréfavísitalna.

Ef um er að ræða afleiður utan skipulegra markaða (e. OTC derivatives) skulu þær uppfylla skilyrði 6. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021.

Afleiður skv. 5. og 6. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021, bæði skráðar á skipulegum markaði og óskráðar, skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. með þeim er heimiluð yfirfærsla útlánaáhættu (e. credit risk) eignar, sem fellur undir 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021, óháð annarri áhættu sem fylgir þeirri eign,
  2. þær hafa ekki í för með sér afhendingu eða tilfærslu eigna, þ.m.t. í reiðufé, að öðru leyti en því sem um getur í 64. gr. laga nr. 116/2021,
  3. þær samræmast skilyrðum fyrir afleiður utan skipulegra markaða (e. OTC derivatives), sbr. 3.-5. málsl. 6. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021, sbr. og ákvæði þetta,
  4. áhættan sem þeim fylgir er varin af áhættustýringu rekstrarfélags sjóðsins og innra eftirlitskerfi, ef um er að ræða áhættu vegna ósamhverfra upplýsinga (e. asymmetry of information) milli verðbréfasjóðsins og mótaðila lánaafleiðu sem stafar af hugsanlegum aðgangi mótaðila að óopinberum upplýsingum um fyrirtæki þar sem eignir þess eru notaðar til grundvallar lánaafleiðum.

Raunvirði skv. 5. málsl. 6. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 er sú fjárhæð sem fengist við sölu eignar eða við uppgjör skuldar í viðskiptum ótengdra aðila, sem eru upplýstir og fúsir til viðskiptanna.

Verðmæti sem unnt er að reikna daglega á áreiðanlegan og sannreynanlegan hátt skv. 4. málsl. 6. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 telst vera verðmat, unnið af rekstrarfélagi verðbréfasjóðs, sem samsvarar raunvirði, sbr. 4. mgr. Matið skal byggt á markaðsskráningu gagnaðila og á áreiðanlegu uppfærðu markaðsvirði gerningsins, eða ef það er ekki fyrir hendi, verðlagningarlíkani sem reist er á fullnægjandi og viðurkenndum aðferðum. Sannprófun á verðmatinu skal framkvæmd af einum af eftirfarandi aðilum:

  1. viðeigandi þriðja aðila, sem er óháður mótaðila afleiðu utan skipulegs markaðar, framkvæmt með hæfilegu millibili og á þann hátt að verðbréfasjóðurinn geti haft eftirlit með því eða,
  2. einingu innan rekstrarfélagsins sem er óháð deildinni sem fer með sjóðsstýringu og hæf til að framkvæma slíka sannprófun.

Eignir sem um getur í 25. tölul. 2. mgr. 3. gr. og 5. og 6. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 taka ekki til hrávöruafleiða.

12. gr. Verðbréfavísitölur, skv. 5. og 6. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021.

Verðbréfavísitala skv. 5. og 6. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 er vísitala sem hefur fullnægjandi dreifingu að því gefnu að eftirtalin skilyrði séu uppfyllt:

  1. vísitalan sé þannig samsett að breytingar á verðlagi eða viðskipti varðandi einn þátt hafi ekki óhófleg áhrif á vísitöluna í heild,
  2. ef vísitalan er sett saman úr eignum, sbr. 1.-8. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 og uppfyllir kröfur 2. málsl. 1. mgr. 68. gr. laga nr. 116/2021 um áhættudreifingu,
  3. ef vísitalan er samsett úr öðrum eignum en þeim sem um getur í 1.-8. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 skal áhættudreifing hennar vera sambærileg við þær kröfur sem gerðar eru skv. 68. gr. laganna.

Þá skal vísitalan endurspegla viðkomandi markað með fullnægjandi hætti að því leyti að eftirtalin skilyrði séu uppfyllt:

  1. vísitalan mæli á raunhæfan hátt árangur dæmigerðra undirliggjandi eigna,
  2. vísitalan sé reglulega endurskoðuð eða þættir í henni reglulega endurskapaðir til að tryggja að vísitalan endurspegli ávallt markaðina sem hún á að endurspegla með því að fylgja opinberum og aðgengilegum viðmiðunum,
  3. undirliggjandi eignir séu nægilega auðseljanlegar þannig að endurskapa megi vísitöluna ef þörf krefur.

Vísitalan skal jafnframt birt opinberlega og með viðeigandi hætti þannig að eftirtalin skilyrði séu uppfyllt:

  1. útgáfuferli hennar sé byggt á traustum aðferðum við samantekt á verði og við útreikninga og síðar birtingar vísitölunnar, þ.m.t. aðferðir við verðlagningu vegna þátta ef markaðsverð liggur ekki fyrir,
  2. mikilvægar upplýsingar, s.s. um útreikning vísitölu, aðferðir við að endurskapa þætti vísitalna, breytingar á vísitölu eða hvers konar vandkvæði við framkvæmd á veitingu tímanlegra eða nákvæmra upplýsinga, séu veittar tímanlega og reglulega.

Ef samsetning eigna sem liggja til grundvallar afleiðusamningum í samræmi við 64. gr. laga nr. 116/2021, uppfyllir ekki skilyrði 1.-3. mgr. skal, ef samningarnir uppfylla skilyrðin sem sett eru fram í 1. mgr. 11. gr. (afleiður), litið á þá sem afleiðusamninga samsetta úr eignunum er um getur í 1. mgr. 11. gr.

13. gr. Framseljanleg verðbréf og peningamarkaðsgerningar sem fela í sér afleiðu, skv. 66. gr. laga nr. 116/2021.

Með framseljanlegum verðbréfum sem fela í sér afleiðu er átt við fjármálagerninga sem uppfylla skilyrði 2. gr., sbr. 1. tölul. 2. mgr. 64. gr. laga nr. 116/2021 og fela í sér þátt sem uppfyllir eftirtalin skilyrði:

  1. hægt sé samkvæmt þeim þætti að breyta að hluta til eða öllu leyti því sjóðstreymi sem annars væri gerð krafa um í framseljanlega verðbréfinu sem virkar eins og innbyggður samningur, í samræmi við tilgreinda vexti, verð fjármálagernings, gengi erlendra gjaldmiðla, vísitölu neysluverðs eða vaxta, lánshæfismat eða lánskjaravísitölu eða aðrar breytur og myndi þar af leiðandi breytast á svipaðan hátt og sjálfstæðar afleiður,
  2. efnahagsleg einkenni og áhætta séu ekki nátengd sömu þáttum vegna innbyggða samningsins,
  3. þátturinn hafi umtalsverð áhrif á áhættusnið og verðlagningu framseljanlegra verðbréfa.

Til að peningamarkaðsgerningar teljist vera gerningar sem fela í sér afleiðu þurfa þeir að uppfylla eitt af skilyrðum 2. mgr. 5. gr. (um hugtakið peningamarkaðsgerningur), öll skilyrði 1. og 2. mgr. 6. gr. og innihalda þátt sem uppfyllir viðmið 1. mgr. þessarar greinar.

Ekki skal litið svo á að framseljanlegt verðbréf eða peningamarkaðsgerningur feli í sér afleiðu ef það felur í sér þátt sem samkvæmt samningi er framseljanlegur óháð framseljanlega verðbréfinu eða peningamarkaðsgerningnum. Slíkur þáttur skal teljast sérstakur fjármálagerningur.

14. gr. Fjárfestingaraðferðir og gerningar til að auka skilvirkni í stýringu eignasafns.

Þegar vísað er til fjárfestingaraðferða sem snúa að framseljanlegum verðbréfum í þeim tilgangi að ná fram skilvirkri stýringu eigna verðbréfasjóðs í 3. mgr. 66. gr. laga um verðbréfasjóði, nr. 116/2021, er átt við fjárfestingaraðferðir sem uppfylla eftirtaldar viðmiðanir:

  1. þær eru fjárhagslega viðeigandi að því leyti að þær eru framkvæmdar á arðsaman hátt,
  2. þær eru nýttar vegna eins eða fleiri eftirtalinna markmiða:

    1. að draga úr áhættu,
    2. að lækka kostnað,
    3. að mynda viðbótarfjármagn eða -tekjur fyrir verðbréfasjóðinn með áhættu sem er í samræmi við áhættusnið verðbréfasjóðsins og ákvæði um áhættudreifingu skv. 67. gr. laga um verðbréfasjóði, nr. 116/2021,
  3. með áhættustýringu verðbréfasjóðsins er áhættu vegna þeirra stjórnað á viðeigandi hátt.

Litið skal svo á að með fjárfestingaraðferðum sem samrýmast viðmiðununum skv. 1. mgr. og tengjast peningamarkaðsgerningum, sé átt við fjárfestingaraðferðir í tengslum við peningamarkaðsgerninga skv. 3. mgr. 66. gr. laga um verðbréfasjóði, nr. 116/2021.

15. gr. Skilyrði vísitölusjóða.

Endurspeglun á samsetningu tiltekinnar hlutabréfa- eða skuldabréfavísitölu skv. 68. gr. laga nr. 116/2021, er endurspeglun samsetningar eigna sem liggja til grundvallar vísitölunni, þ.m.t. notkun á afleiðum eða öðrum fjárfestingaraðferðum, sbr. 3. mgr. 66. gr. laga nr. 116/2021.

Fullnægjandi áhættudreifing vísitölu er áhættudreifing vísitalna sem uppfyllir reglur 68. gr. laga nr. 116/2021 um áhættudreifingu.

Vísitala endurspeglar nægjanlega viðkomandi markað samkvæmt 68. gr. laga nr. 116/2021 þegar vísitalan er fengin með viðurkenndri aðferðafræði sem felur almennt ekki í sér útilokun umfangsmikils útgefanda á markaðnum sem hún á við um.

Með birtingu vísitölu opinberlega skv. 3. mgr. 66. gr. laga nr. 116/2021 er átt við að almenningur hafi aðgang að upplýsingunum og sá sem reiknar vísitöluna sé óháður vísitölusjóðnum. Það kemur þó ekki í veg fyrir að sá sem reiknar vísitöluna og vísitölusjóðurinn séu innan sömu samstæðu að því tilskildu að fullnægjandi ráðstafanir séu gerðar til að draga úr hættu á hagsmunaárekstrum.

III. KAFLI Upplýsingagjöf.

16. gr. Ársreikningar og árshlutauppgjör.

Kafli þessi er ætlaður til fyllingar VII. kafla laga nr. 116/2021.

17. gr. Upplýsingar í útboðslýsingu.

Rekstrarfélag skal gefa út útboðslýsingu fyrir hvern verðbréfasjóð eða sérhverja sjóðsdeild, sem það annast rekstur á. Í útboðslýsingu skulu koma fram nauðsynlegar upplýsingar til að fjárfestum sé kleift að meta kosti fjárfestinga í viðkomandi sjóði.

Í útboðslýsingu skulu að lágmarki koma fram eftirfarandi upplýsingar, auk þeirra sem krafist er í 58. gr. laga nr. 116/2021:

  1. Um verðbréfasjóð:
    1. Heiti.
    2. Stofndagur og rekstrartími, ef hann er tímabundinn.
    3. Hvort sjóður sé deildaskiptur.
    4. Hvar fá megi reglur og reglulegar skýrslur um starfsemi sjóðsins.
    5. Stutt lýsing á skattareglum og skattalegri meðferð sem gilda um hlutdeildarskírteini í sjóðnum og upplýsingar um kostnað og annan frádrátt frá tekjum eða hagnaði af fjármálagerningum í eigu sjóðsins sem eigendur sjóðsins fá í sinn hlut.
    6. Hvenær ársreikningur og árshlutauppgjör skulu birt og hvenær arður eða annar hagnaður af starfsemi sjóðsins verður greiddur út til eigenda.
    7. Upplýsingar um tegundir og helstu einkenni hlutdeildarskírteina, meðal annars:

      7.1. eðli þeirra réttinda sem hlutdeildarskírteini veita,
      7.2. skilríki sem veita sönnun fyrir eignarrétti að hlutdeildarskírteinum og/eða færslum á skrá eða reikning,
      7.3. einkenni hlutdeildarskírteina ,
      7.4. atkvæðisrétt eigenda hlutdeildarskírteina ef við á,
      7.5. við hverjar aðstæður megi ákveða að slíta sjóðnum og hvernig að því skuli staðið, einkum með tilliti til réttar eigenda hans.
    8. Þar sem við á skal tilgreina á hvaða skipulegum mörkuðum hlutdeildarskírteinin eru eða munu verða skráð eða ganga kaupum og sölum.
    9. Tilhögun og skilyrði fyrir útgáfu og sölu hlutdeildarskírteina.
    10. Tilhögun og skilyrði fyrir endurkaupum eða innlausn hlutdeildarskírteina og við hverjar aðstæður megi fresta endurkaupum eða innlausn.
    11. Reglur um útreikning og ráðstöfun tekna.
    12. Fjárfestingarmarkmið verðbréfasjóðsins, þar á meðal um fjárhagslegan tilgang (þ.e. uppsöfnunar- eða tekjusjóð), fjárfestingarstefnu (t.d. sérhæfing eftir landssvæðum eða atvinnugreinum), takmarkanir á þeirri fjárfestingarstefnu og tilgreining fjárfestingaraðferða eða lántökuheimilda sem heimilt er að nota við rekstur sjóðsins.
    13. Reglur um verðmat eigna.
    14. Ákvörðun um sölu- eða útgáfuverð og endurkaups- eða innlausnarverð hlutdeildarskírteina, meðal annars:

      14.1. hvernig og hve oft verð eru reiknuð,
      14.2. upplýsingar um gjöld af sölu, útgáfu, endurkaup eða innlausn skírteina,
      14.3. hvernig, hvar og hve oft verð eru birt.
    15. Upplýsingar um þóknun sem sjóðurinn greiðir rekstrarfélagi, vörsluaðila eða þriðja aðila, hvers eðlis hún er, upphæð hennar og útreikning á þóknuninni, sem og endurgreiðslu sjóðsins á kostnaði til þeirra.
  2. Um rekstrarfélag:

    1. Heiti, rekstrarform, skráð starfsstöð og aðalskrifstofa.
    2. Stofndagur.
    3. Aðrir sjóðir sem rekstrarfélagið annast rekstur á.
    4. Nöfn og staða stjórnar, varastjórnar og framkvæmdastjóra rekstrarfélagsins. Upplýsingar um helstu störf þeirra utan rekstrarfélags, ef þau skipta máli hvað rekstrarfélagið snertir.
    5. Nöfn og heimilisföng löggiltra endurskoðenda rekstrarfélagsins.
    6. Hlutafé og hve mikið hefur verið greitt.
  3. Um vörsluaðila:

    1. Heiti og félagsform.
    2. Skráð starfsstöð.
    3. Lýsing á skyldum vörsluaðila og þeim hagsmunaárekstrum sem geta komið upp.
    4. Lýsing á útvistun verkefna vörsluaðila, listi yfir útvistunaraðila og keðjuútvistunaraðila og lýsing á hagsmunaárekstrum sem geta komið upp vegna útvistunar.
    5. Yfirlýsing um að uppfærðar upplýsingar skv. 1.-4. tölul. C-liðar verði aðgengilegar fjárfestum samkvæmt beiðni þeirra þar um.
  4. Aðrar upplýsingar:

    1. Upplýsingar um aðila utan rekstrarfélags sem veita ráðgjöf samkvæmt samningi sem greitt er fyrir af eignum sjóðsins:

      1.1. heiti fyrirtækisins eða nafn ráðgjafans
      1.2. þau ákvæði samningsins sem máli skipta og kunna að varða eigendur sjóðsins, að öðru leyti en hvað varðar þóknun,
      1.3. önnur starfsemi sem máli skiptir.
    2. Fyrirkomulag greiðslna til hlutdeildarskírteinishafa, endurkaup eða innlausn hlutdeildarskírteina og aðgengi að upplýsingum um verðbréfasjóð.
    3. Fyrri árangur sjóðsins.
    4. Lýsing á dæmigerðum fjárfesti sem sjóðurinn er ætlaður fyrir.
    5. Hugsanlegur kostnaður, annar en vegna þóknana samkvæmt 15. tölul. A-liðar, og skal greina á milli þess kostnaðar sem eigendur hlutdeildarskírteina greiða og þess kostnaðar sem greiddur er af eignum verðbréfasjóðsins.

Reglur verðbréfasjóðs skulu vera hluti útboðslýsingar og fylgja henni. Upplýsingar sem fram koma í reglunum þarf ekki að tilgreina sérstaklega í útboðslýsingu.

Um lykilupplýsingar skv. 59. gr. laga nr. 116/2021 er nánar fjallað í reglugerð nr. 983/2013 sem sett er með stoð í 9. mgr. 59. gr. sömu laga.

IV. KAFLI Önnur ákvæði.

17. gr. Lögleiðing.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3., 58., 64. og 1. mgr. 134. gr. laga nr. 116/2021 um verðbréfasjóði. II. kafli um fjárfestingarheimildir verðbréfasjóða er til innleiðingar á tilskipun 2007/16/EB um framkvæmd tilskipunar ráðsins 85/611/EBE um sameiginlega fjárfestingu í framseljanlegum verðbréfum (UCITS) að því er varðar útskýringu á tilteknum skilgreiningum sem vísað er til í lið 30a í IX. viðauka (fjármálaþjónusta) samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 59, frá 18. október 2012, bls. 312. III. kafli um upplýsingagjöf er til innleiðingar á skrá A í viðauka I við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum að því er varðar verðbréfasjóði.

18. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð nr. 1166/2013 um fjárfestingarheimildir verðbréfasjóða, innlausn, markaðssetningu erlendra sjóða og upplýsingagjöf með síðari breytingum.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 24. ágúst 2021.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Elísabet Júlíusdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.