Fjármála- og efnahagsráðuneyti

820/2026

Reglugerð um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki.

1. gr.Innleiðing.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1988 frá 12. júlí 2022 um framlengingu á umbreytingartímabilinu til að veita áfram hópfjármögnunarþjónustu í samræmi við landslög eins og um getur í 1. mgr. 48. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 gildir hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af bókun 1 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

2. gr.Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 11. gr. laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki nr. 51/2026, öðlast gildi 1. ágúst 2026.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 3. júlí 2026.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Steinar Örn Steinarsson.

B deild - Útgáfudagur: 17. júlí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica