Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Stofnreglugerð

690/2019

Reglugerð um heimild Fjármálaeftirlitsins til að taka gildar lýsingar frá öðrum EES-ríkjum samkvæmt reglugerð ESB 2017/1129 um lýsingu sem birta skal við almenn útboð verðbréfa eða vegna töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði.

1. gr.

Fjármálaeftirlitinu er heimilt að taka gildar lýsingar, auk viðauka við þær, sem staðfestar hafa verið af lögbærum yfirvöldum á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt ákvæðum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129 frá 14. júní 2017 um lýsingu sem birta skal við almenn útboð verðbréfa eða vegna töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði og um niðurfellingu á tilskipun 2003/71/EB.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 54. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, og öðlast gildi 21. júlí 2019.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 17. júlí 2019.

F. h. r. Guðmundur Kári Kárason.

Sóley Ragnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.