Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. sept. 2021

594/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1166/2013 um fjárfestingarheimildir verðbréfasjóða, innlausn, markaðssetningu erlendra sjóða og upplýsingagjöf.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Orðin "og fjárfestingarsjóða" í 1. mgr. falla brott.
  2. Orðin "fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði" í 1. mgr. falla brott.
  3. 2. mgr. fellur brott.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Orðin "eða fjárfestingarsjóður" í 1. tölul. falla brott.
  2. Orðin "eða fjárfestingarsjóðs" í 2. og 3. tölul. falla brott.
  3. Orðin "og fjárfestingarsjóðir" í 3. tölul. falla brott.

3. gr.

Orðin "eða fjárfestingarsjóðs" í 1. tölul. 3. gr. reglugerðarinnar falla brott.

4. gr.

Orðið "fjárfestingarsjóðs" í 1. og 2. mgr. 4. gr., 1. mgr. 5. gr. og 1. og 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

5. gr.

Orðið "fjárfestingarsjóður" í 1. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. reglugerðarinnar:

  1. Orðið "fjárfestingarsjóði" sem kemur fyrir tvisvar sinnum í 1. mgr. fellur brott.
  2. Orðin "eða fjárfestingarsjóður" í 2. mgr. falla brott.
  3. Orðin "og 4. mgr. 59. gr." í 2. mgr. falla brott.

7. gr.

Orðið "eða öðrum sjóði um sameiginlega fjárfestingu" í 23. gr. reglugerðarinnar falla brott.

8. gr.

Orðið "fjárfestingarsjóð" í 1. mgr. 24. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

9. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 25. gr. reglugerðarinnar:

  1. Orðið "fjárfestingarsjóð" í 1. mgr. fellur brott.
  2. Orðin "eða fjárfestingarsjóð" í fyrirsögn A-liðar 2. mgr. falla brott.
  3. Orðin "og fjárfestingarsjóð" í 6. tölul. D-liðar 2. mgr. falla brott.
  4. Orðin "og fjárfestingarsjóðs" í 3. mgr. falla brott.

10. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 28. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "18. gr., 49. gr., 52. gr. og 65. gr." í 1. málsl. kemur: 49. gr., 52. gr. og 64. gr.
  2. Orðin "fjárfestingarsjóði og fagfjárfestingarsjóði" í 1. málsl. falla brott.

11. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 49. gr., 52. gr. og 64. gr. laga nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 3. júní 2020.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Elísabet Júlíusdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.