Prentað þann 24. apríl 2024
566/2018
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1155/2017, um innheimtu þinggjalda og jöfnunargjalds á árinu 2018.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað "1. júlí, 1. ágúst og 1. september" í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst.
- Í stað "og ógreidds fjársýsluskatts" í 2. málsl. 2. mgr. kemur: ógreidds fjársýsluskatts og tryggingagjalds.
- Í stað "1. júlí" í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 1. júní.
- Í stað "og ógreidds fjársýsluskatts" í 3. mgr. kemur: ógreidds fjársýsluskatts og tryggingagjalds.
- Í stað "1. nóvember" í 3. mgr. kemur: 1. október.
- 4. mgr. fellur brott.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 112., 114. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, og 22. gr. laga nr. 81/2003, um fjarskipti, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. júní 2018.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 29. maí 2018.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.