Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 31. okt. 2023

534/2020

Reglugerð um stuðningslán.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um stuðningslán samkvæmt lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020. Hún gildir ekki um viðbótarlán sem ríkissjóður ábyrgist á grundvelli liðar 7.32 í heimildagrein fjárlaga fyrir árið 2020, nr. 133/2019, sbr. fjáraukalög fyrir árið 2020, nr. 26/2020.

2. gr. Orðskýringar.

Í reglugerð þessari er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:

Aðallánastofnun: Sú lánastofnun þar sem mest velta var á innstæðum rekstraraðila síðustu tólf almanaksmánuði, eða þá heilu almanaksmánuði sem hann hefur starfað hafi hann starfað skemur en tólf almanaksmánuði.

Lánshæfismat: Lánshæfismat á vegum aðila sem hefur leyfi til að gera lánshæfismat skv. 1. mgr. 15. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.

Rekstrarár: Tekjutímabil rekstraraðila skv. 1. mgr. 59. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003.

Vanskilaskrá: Vanskilaskrá á vegum aðila sem hefur leyfi til vanskilaskráningar skv. 1. mgr. 15. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.

3. gr. Umsókn.

Rekstraraðili, eða sá sem rekstraraðili hefur veitt umboð, sækir um stuðningslán í gegnum miðlæga þjónustugátt á vefnum Ísland.is og tilgreinir þá fjárhæð sem sótt er um. Hann skal staðfesta við umsókn að honum sé kunnugt um og samþykki upplýsingamiðlun skv. 4. gr.

Umsóknir um stuðningslán sem ríkissjóður ábyrgist að fullu skulu vera aðgreindar frá umsóknum um stuðningslán með 85% ábyrgð ríkissjóðs. Í umsókn skal tilgreina þann láns- og endurgreiðslutíma sem sótt er um, sbr. 1. mgr. 8. gr.

4. gr. Hlutverk miðlægrar þjónustugáttar.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið, sem umsjónaraðili Ísland.is, aflar upplýsinga frá rekstraraðila, lánastofnunum, Skattinum, Fjársýslu ríkisins og aðilum sem annast lánshæfismöt eða vanskilaskrár sem eru nauðsynlegar til að meta hvort rekstraraðili uppfylli skilyrði fyrir því að fá stuðningslán skv. 1. og 10. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, sbr. einnig 7. gr. þessarar reglugerðar, og hver fjárhæð þess geti að hámarki orðið.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið framsendir umsókn, ásamt upplýsingum skv. 1. mgr. og upplýsingum um fyrri umsóknir rekstraraðila og afgreiðslu þeirra, til aðallánastofnunar rekstraraðila. Hafi hún ekki samið við Seðlabanka Íslands skv. 2. mgr. 20. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, skal rekstraraðili velja til hvaða lánastofnunar, sem samið hefur við Seðlabankann samkvæmt nefndu ákvæði, umsókn og upplýsingar skv. 1. málsl. skulu sendar.
Að ósk rekstraraðila má senda umsókn og upplýsingar skv. 1. málsl. til annarrar lánastofnunar en aðallánastofnunar með samþykki þeirrar lánastofnunar sem rekstraraðili tilgreinir. Skal fjármála- og efnahagsráðuneytið þá upplýsa aðallánastofnun um það.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið upplýsir lánastofnun sem fær umsókn framsenda skv. 2. mgr. um hvort framkomnar upplýsingar gefi til kynna að rekstraraðili uppfylli skilyrði fyrir því að fá stuðningslán og hvort umsókn kunni að kalla á sérstaka skoðun lánastofnunarinnar.

Lánastofnun skal upplýsa fjármála- og efnahagsráðuneytið um afgreiðslur umsókna og veitt lán.

5. gr. Ákvörðun.

Lánastofnun sem fær umsókn framsenda skv. 2. mgr. 4. gr. ákveður hvort rekstraraðila skuli veitt stuðningslán og fjárhæð þess. Hún getur kallað eftir frekari upplýsingum og gögnum frá rekstraraðila ef hún telur það nauðsynlegt til að taka ákvörðun um lánveitingu, þ. á m. um fjárhæð láns.

Lánastofnun afgreiðir stuðningslán sem ríkissjóður ábyrgist að fullu á grundvelli umsóknar og upplýsinga sem henni berast skv. 2. mgr. 4. gr. nema hún megi bersýnilega ætla að umsóknin byggist á ófullnægjandi upplýsingum.

Lánastofnun er heimilt að veita rekstraraðila stuðningslán með 85% ábyrgð ríkissjóðs uppfylli hann öll skilyrði 1. og 10. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, sbr. einnig 7. gr. þessarar reglugerðar, og, eftir atvikum, viðmið sem lánastofnun setur um veitingu slíkra lána á grundvelli samnings við Seðlabanka Íslands skv. 2. mgr. 20. gr. laganna.

Lánastofnun er heimilt að veita stuðningslán til loka maí 2021.

6. gr. Hámarksfjöldi lána.

Rekstraraðili getur fengið allt að fjögur stuðningslán. Stuðningslán til hvers rekstraraðila geta þó samanlagt aldrei orðið hærri en leiðir af 11. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020.

7. gr. Rekstrarhæfi.

Rekstraraðili uppfyllir skilyrði 8. tölul. 10. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, ef a.m.k. annað af eftirtöldu á við:

  1. Samkvæmt síðasta lánshæfismati þegar umsókn er lögð fram eru líkur á alvarlegum vanskilum af hans hálfu næstu tólf mánuði minni en 5%.
  2. Hann uppfyllir a.m.k. tvö af eftirfarandi skilyrðum:

    1. Hann er ekki á vanskilaskrá þegar umsókn er lögð fram.
    2. Rekstur hans skilaði hagnaði fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) a.m.k. annað af tveimur síðustu rekstrarárum eða frá því að hann hóf starfsemi til loka febrúar 2020 hafi hann ekki starfað heilt rekstrarár.
    3. Eigið fé rekstrar var jákvætt í lok síðasta rekstrarárs eða í lok febrúar 2020 ef starfsemi hans var ekki hafin í lok síðasta rekstrarárs.

8. gr. Lánstími.

Lánastofnun getur veitt stuðningslán til lengri tíma en tveggja og hálfs árs, eða framlengt lánstíma umfram tvö og hálft ár, og krafist lengri endurgreiðslutíma en eins árs. Lánstími stuðningsláns sem ríkissjóður ábyrgist að fullu má þó ekki verða lengri en fimm og hálft ár og endurgreiðslur þess skulu hefjast eigi síðar en þremur árum frá því að lán er veitt. Lánstími stuðningsláns með 85% ábyrgð ríkissjóðs má ekki verða lengri en sjö ár og endurgreiðslur þess skulu hefjast eigi síðar en þremur og hálfu ári frá því að lán er veitt.

Stuðningslán, að meðtöldum vöxtum, skal endurgreitt með jöfnum mánaðarlegum greiðslum á endurgreiðslutíma skv. 1. mgr.

Breytingar á skilmálum rafræns skuldabréfs skv. 14. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, vegna framlengingar lánstíma og frestun endurgreiðslna geta verið rafrænar og fer um þær eftir ákvæðum 14. og 15. gr. laganna.

9. gr. Upplýsingar.

Rekstraraðili skal geta nálgast almennar upplýsingar um stuðningslán og upplýsingar um afgreiðslu umsóknar um stuðningslán á miðlægri þjónustugátt á vefnum Ísland.is. Rekstraraðili skal beina fyrirspurnum um stuðningslán til aðallánastofnunar sinnar eða annarrar lánastofnunar sem hann hefur tilgreint skv. 2. mgr. 4. gr.

10. gr. Meðferð ágreiningsmála.

Rekstraraðili getur borið réttarágreining við lánastofnun um stuðningslán undir úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki eftir því sem nánar greinir í samþykktum nefndarinnar eða dómstóla eftir almennum reglum.

11. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. tölul. 10. gr., 2. mgr. 13. gr. og 24. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.