Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

527/2018

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu og kynningu á tilteknum áfengum drykkjum (VI).

1. gr. Gildissvið.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XXVII. kafla II. viðauka samningsins (brenndir drykkir), gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.

Innflutningur og markaðssetning á brenndum drykkjum er heimil eftir því sem tilgreint er í XXVII. kafla II. viðauka samningsins.

2. gr. Innleiðing reglugerðar.

Eftirfarandi reglugerð Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á áfengum drykkjum skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/175 frá 2. febrúar 2018 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 33/2018, 17. maí 2018, bls. 220), um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 110/2008 um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2018, frá 27. apríl 2018, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.

3. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 17. maí 2018.

F. h. r.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Steinar Örn Steinarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.