Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

502/2017

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu og kynningu á tilteknum áfengum drykkjum (IV).

1. gr. Gildissvið.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XXVII. kafla II. viðauka samningsins (brenndir drykkir), gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.

Innflutningur og markaðssetning á brenndum drykkjum er heimil eftir því sem tilgreint er í XXVII. kafla II. viðauka samningsins.

2. gr. Innleiðing reglugerða.

Eftirfarandi reglugerðir Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á áfengum drykkjum skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar:

  1. Skilgreining, lýsing, kynning, merking og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum:

    1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/235, frá 18. febrúar 2016 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 10/2017, 16. febrúar 2017, bls. 194), um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 110/2008 um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 240/2016, frá 2. desember 2016, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.
  2. Tilvísunaraðferðir fyrir greiningu brenndra drykkja:

    1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/635 frá 22. apríl 2016 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 31/2017, 18. maí 2017, bls. 135), um breytingu á viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2870/2000 að því er varðar tilteknar tilvísunaraðferðir fyrir greiningu brenndra drykkja, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 57/2017, frá 17. mars 2017, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.

3. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. maí 2017.

F. h. r.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Steinar Örn Steinarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.