Félags- og tryggingamálaráðuneyti

476/2008

Reglugerð um upphæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. - Brottfallin

1. gr.

Upphæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra lang­veikra eða alvarlega fatlaðra barna skulu verða sem hér segir:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 3. mgr. 11. gr. laganna skal nema 535.700 kr. á mánuði.
  2. Greiðsla til foreldris í námi skv. 14. gr., sbr. 1. mgr. 16. gr. laganna skal nema 134.300 kr. á mánuði.
  3. Grunngreiðsla skv. 1. mgr. 19. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. laganna skal nema 134.300 kr. á mánuði.
  4. Barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 19.760 kr. á mánuði.
  5. Sérstakar barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 5.720 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 14.872 kr. á mánuði vegna þriggja barna.
  6. Frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. laganna skal vera 53.800 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. 31. gr. laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. lög nr. 158/2007, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda frá og með 1. janúar 2008.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 9. maí 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ágúst Þór Sigurðsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica