Félagsmálaráðuneyti

1128/2019

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

1. gr.

Við 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður sem orðast svo: Þó er heimilt að telja atvinnutekjur til tekna greiðsluþega einungis í þeim mánuði þegar þeirra er aflað.

2. gr.

1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Komi fram upplýsingar frá þeim aðilum sem getið er um í 1. mgr. 3. gr. eða við eftirlit Trygg­ingastofnunar sem leiða til breytinga á tekjuáætlun innan ársins og breytingin hefur áhrif á rétt til bóta eða fjárhæð greiðslna skal stofnunin breyta útreikningi bóta frá og með næsta mánuði á eftir til samræmis við þær upplýsingar og upplýsa bótaþega samstundis um breytinguna. Telji bótaþegi upp­lýsingarnar ekki réttar skal hann leggja fram gögn því til staðfestingar.

3. gr.

Á eftir 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein sem orðast svo:

Ef um atvinnutekjur er að ræða skal Tryggingastofnun við endurreikning bótafjárhæða gera saman­burð á útreikningi heildargreiðslna hvers mánaðar, annars vegar miðað við 1/12 af atvinnu­tekjum ársins og hins vegar miðað við atvinnutekjur í þeim mánuðum sem þeirra er aflað. Beita skal þeirri reglu sem leiðir til hærri greiðslna.

4. gr.

Á eftir 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein sem orðast svo:

Við endurreikning bóta til þeirra sem fá atvinnutekjur, sbr. 3. mgr. 6. gr., gildir eftirfarandi:

  a) Byggja skal á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um er að ræða atvinnu­tekjur sem eru staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda.
  b) Aðrar atvinnutekjur en þær sem greinir í a-lið skulu hafa áhrif á endurreikning bóta í sam­ræmi við 2. og 4. mgr. 4. gr. reglugerðar þessarar. Þó er heimilt að telja þær atvinnu­tekjur til tekna í þeim mánuðum sem þeirra er aflað komi fram ósk greiðsluþega um það og að því tilskildu að greiðsluþegi leggi fram fullnægjandi gögn til staðfestingar á því hvenær tekn­anna var aflað.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. mgr. 16. gr., sbr. 70. gr. laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2020.

Félagsmálaráðuneytinu, 13. desember 2019.

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica