1008/2010
Reglugerð um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2011 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. - Brottfallin
Felld brott með:
Breytingareglugerð:
1. gr.
Fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna skulu vera sem hér segir fyrir árið 2011:
- Hámarksfjárhæð skv. 3. mgr. 11. gr. laganna skal nema 587.127 kr. á mánuði.
- Greiðsla til foreldris í námi skv. 14. gr., sbr. 1. mgr. 16. gr. laganna skal nema 147.193 kr. á mánuði.
- Grunngreiðsla skv. 1. mgr. 19. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. laganna skal nema 147.193 kr. á mánuði.
- Barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 21.657 kr. á mánuði.
- Sérstakar barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 6.269 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 16.300 kr. á mánuði vegna þriggja barna.
- Frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. laganna skal vera 58.965 kr. á mánuði.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. 31. gr. laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. lög nr. 158/2007, öðlast gildi 1. janúar 2011.
Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 20. desember 2010.
Guðbjartur Hannesson.
Ágúst Þór Sigurðsson.